Silfurtún - umsókn um vistun
Forsendur umsóknar um dvöl á dvalarheimilum er, að gert hafi verið vistunarmat, samanber lög um málefni aldraðra. Um er að ræða umsókn fyrir hjúkrunarrými eða dvalarrými.
Umsóknareyðublað fyrir hjúkrunarrými.
Fylla þarf út umsókn / heimild til vistunarmats þegar sótt er um pláss í hjúkrunarrými á dvalarheimilum. Á heimasíðu Landlæknis má fá nánari upplýsingar um hjúkrunarrými og umsóknareyðublað.
Umsóknareyðublað fyrir dvalarrými
Fylla þarf út umsókn um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými þegar sótt er um pláss í dvalarrými á dvalarheimilum. Á heimasíðu Velferðarráðuneytisins eru nánari upplýsingar um dvalarrými og umsóknareyðublað.
Umsókn um vistunarmat í Dalabyggð er send til
Vistunarmatsnefnd,
Heilsugæslustöðin í Borgarnesi,
Borgarbraut 65,
310 Borgarnesi.
Ítarefni
Velferðarráðuneytið - málefni aldraðra
Landlæknir - málefni aldraðra