Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Héraðsskjalasafn Dalasýslu


Miðbraut 11, Búðardal

Sími: 430 4706 / 434 1328

Netfang: safnamal@dalir.is

Héraðsskjalavörður er Valdís Einarsdóttir

 

Héraðsskjalasafn Dalasýslu var stofnað 1987 fyrir tilstuðlan Einars Kristjánssonar fyrrverandi skólastjóra Laugaskóla.

 

Héraðsskjalasafn Dalasýslu er opinbert skjalasafn fyrir Dalabyggð og starfar eftir lögum nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands og reglugerð um héraðsskjalasöfn nr. 283/1994.

 

Skilaskyld skjöl skal afhenda héraðsskjalasafni eigi síðar en þegar þau hafa náð 30 ára aldri. Miða skal við síðustu innfærslu í bók eða síðasta bréf afgreidds máls.

 

Skilaskildir aðilar eru  sveitarstjórnir, sýslunefnd, byggðasamlög, hreppstjórar. Sama gildir um embætti, stofnanir og fyrirtæki á vegum þessara aðila.  Ennfremur félög og samtök sem njóta verulegra styrkja af opinberu fé.

 

Safnið tekur einnig á móti skjölum og myndum frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum á safnsvæðinu.

 

Safnið veitir almenningi aðgang að framangreindum skjölum nema á þeim hvíli leynd samkvæmt lögum eða sérstökum ákvæðum þar að lútandi.

 

Þeir sem eru með skilaskyld skjöl eða skjöl sem að þeirra mati eiga heima á Héraðsskjalasafninu eru beðnir að hafa samband við héraðsskjalavörð.

 

Aðfangaskrá er til um safnið, en að öðru leiti er það enn óskráð. Hafist verður handa við skráningu á árinu 2010.

 

Ítarefni

Þjóðskjalasafn Íslands

Héraðsskjalasöfn á Íslandi

Lög nr. 66/1985, um Þjóðskjalasafn Íslands

Reglugerð nr 283/1994. um héraðsskjalasöfn