Eiríksstaðir í Haukadal
Sími: 434 1118 og 661 0434
Netfang: siggijok@simnet.is
Veffang: www.eiriksstadir.is
Staðarhaldari: Sigurður Hrafn Jökulsson
Opnunartímar
Opið: 1. júní - 31. ágúst 2010 og eftir samkomulagi á öðrum tímum.
Opnunartími: 900-1800 og eftir samkomulagi.
Aðgangseyrir
| |
Einstaklingar |
800 |
kr |
|
Lífeyrisþegar og hópar |
600 |
kr |
|
Börn 12 ára og yngri í fylgd fullorðinna |
0 |
kr |
Eiríkur rauði bjó á Eiríksstöðum í Haukadal. Kona hans var Þjóðhildur Jörundardóttir. Eiríkur þótti illur viðureignar og var gerður brottrækur úr Haukadal. Eftir að hafa verið gerður útlægur frá Íslandi nam Eiríkur rauði nam land á Grænlandi. Sonur Eiríks og Þjóðhildar var Leifur heppni. Hann varð fyrstur Evrópumanna til að kanna Nýja heiminn, það er þau lönd sem í dag kallast Ameríka.
Á Eiríksstöðum er í dag víkingaskáli, tilgátuhús þar sem var lögð áhersla á að styðjast við rústirnar, rannsóknir og fornt verklag. Eiríksstaðir eru lifandi safn þar sem leiðsögumenn klæddir að fornum sið fræða gesti um söguna, sýna fornt handverk og muni. Á Eiríksstöðum má m.a. sjá þau handverkfæri sem notuð voru við smíði bæjarins.