Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Landnámsmenn í Dalasýslu


 

Í upphafi skiptist Dalasýsla í fjögur landnámssvæði. Og hvert þeirra skiptist síðan á milli ættingja og vina viðkomandi landnámsmanna.

 

Auður djúpugða

"Auður nam öll Dalalönd í innanverðum firðinum frá Dögurðará til Skraumuhlaupsár. Hún bjó í Hvammi við Aurriðaárós; þar heita Auðartóftir. "  (Landnáma 37. kafli)

Auður hin djúpúðga, „er tignust var allra landnámskvenna“, nam Suðurdali alla og nær alla Hvammssveit, og skipti síðan þeim löndum með frændum sínum og öðrum skipverjum.

 

Kjallakur gamli

"Kjallakur hét maður, son Bjarnar hins sterka, bróður Gjaflaugar, er átti Björn hinn austræni; hann fór til Íslands og nam land frá Dögurðará til Klofninga og bjó á Kjallaksstöðum. " (Landnáma 40. kafli)

Kjallakur gamli bjó að Kjallaksstöðum og hafði hann numið Meðalfellsströnd alla utan frá Klofning og inn fyrir Ketilsstaði í Hvammssveit inn að Dögurðará. Einnig virðist hann hafa lagt eyjar þær allar, er þar voru fyrir landi, undir landnám sitt. Dreifðust börn hans um landnámssvæðið og reistu þar bú. Getur Landnáma víða barna hans. 

 

Geirmundur heljarskinn

"Geirmundur hélt inn að Meðalfellsströnd og nam land frá Fábeinsá til Klofasteina; hann lagði í Geirmundarvog, en var hinn fyrsta vetur í Búðardal." (Landnáma 40. kafli)

Geirmundar heljarskinns hafði áður verið konungur í Noregi. Fábeinsá liggur niður undan Stakkabergi og Klofasteinar eru á Nýpurhlíð. Geirmundur og Kjarlakur börðust um landsvæði milli sinna landnáma og hafði Geirmundur betur í þeirri viðureign.

 

Steinólfur hinn lági

"Steinólfur nam land inn frá Klofasteinum, en Úlfur fyrir vestan fjörð, sem enn mun sagt verða." (Landnáma 40. kafli)

Steinólfur lági nam land frá Klofasteinum til Grjótvallarmúla fyrir innan Stórholt og hefur því numið Saurbæ allan, enda segir Landnáma, að Sléttu-Björn hafi numið land í Saurbæ, að ráði Steinólfs, en Sléttu-Björn bjó í Staðarhólsdal. Það er því helst að sjá, að Dalasýsla hafi í upphafi skipst í fjórar sveitir, hver með sinn fyrirmann, en brátt hófust erjur innsveitis, eins og með Fellstrendingum.