Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Dalabyggð


 

Sveitarfélagið Dalabyggð nær frá botni Álftafjarðar og að botni Gilsfjarðar.

 

Í Dalabyggð búa um 700 manns, þar af 240 í Búðardal.

 

Í sveitarfélaginu eru m.a. heilsugæsla, tannlæknaþjónusta, verslun, banki, vínbúð, flutninga- og bifreiðaþjónusta, rafvirki, trésmiðja, blómabúð, tvær hárgreiðslustofur, líkamsræktaraðstaða og sundlaug. 

Góð þjónusta er við íbúana sem þar búa. Í Auðarskóla er rekinn leikskóladeild í Búðardal, tvær grunnskóladeildir og tónlistarskóli í Búðardal og Tjarnarlundi. 

 

Í Auðarskóla - Búðardal er fullkominn fjarfundarbúnaður, þar sem íbúar hafa stundað nám við Háskólann á Akureyri. Um hálftíma akstur er að Háskólanum á Bifröst og hafa íbúar Dalabyggðar jafnframt nýtt sér fjölbreytta menntunarmöguleika þar.


 

Á Laugum í Sælingsdal eru starfræktar Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ á veturna, en hótel og tjaldsvæði á sumrin. Þar er Byggðasafn Dalamanna, sundlaug, íþróttahús og Guðrúnarlaug.

 

Haustið 2009 kom nýr vegur um Gautsdal og Arnkötludal, Þröskuldar, til Stranda. Við það hefur umferð um Dalina stóraukist og tækifæri í ferðaþjónustu samhliða.


Til Reykjavíkur eru 150 km, í Borgarnes eru 80 km og í Stykkishólm 86 km.