Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Lausaganga búfjár


 

Lausaganga stórgripa er bönnuð í Dalabyggð frá 1. október 1996, sbr. auglýsing um bann við lausagöngu stórgripa og geitfjár í Dalabyggð frá 5. janúar 1995.

 

Lausaganga geitfjár er bönnuð í Dalabyggð frá 1. janúar 1995, sbr. auglýsing um bann við lausagöngu stórgripa og geitfjár í Dalabyggð frá 5. janúar 1995.

 

Samþykktin gildir einnig um stórgripi og geitfé sem er í hagagöngu í Dalabyggð.

 

Lausagöngbann þýðir að öllum eigendum og umráðamönnum viðkomandi búfjártegundar er skylt að hafa þá innan gripheldra girðinga allt árið, þannig að þeir geti ekki gengið í annars manns land í óleyfi.

 

Athygli er einnig vakin á 50. grein vegalaga nr. 80/2007 þar sem öll lausaganga búfjár er bönnuð þar sem girt er báðum megin vegar og lokað er fyrir ágangi búfjár.

 

Ítarefni

Auglýsing um bann  við lausagöngu stórgripa og geitfjár í Dalabyggð 5. janúar 1995.

Lög nr. 103/2002 um búfjárhald.

Reglugerð nr. 59/2000 um vörslu búfjár.

Vegalög nr. 80/2007.