Reglur um niðurgreiðslu daggjalda
vegna dagvistunar á einkaheimilum
1) Samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Dalabyggðar skal greiða niður daggjöld vegna barna sem eru í daggæslu í heimahúsum og eiga lögheimili í Dalabyggð. Reglur þessar gilda einnig um foreldra barna sem eiga lögheimili í Dalabyggð en dvelja tímabundið vegna náms eða starfa í öðru sveitarfélagi. Réttur til niðurgreiðslu gildir þar til leikskólapláss býðst.
2) Niðurgreiðslur eru háðar eftirfarandi skilyrðum:
a) Að dagforeldri hafi leyfi yfirvalda til daggæslu á heimili sínu.
b) Að barnið sé á aldrinum 6 mánaða til 6 ára (að upphafi skólagöngu).
c) Að fyrir liggi þjónustusamningur milli dagforeldris, foreldra og fulltrúa Dalabyggðar.
d) Námsmenn verða að skila vottorði skóla um fullt dagnám í upphafi hverrar annar.
3) Dagforeldri dregur frá reikningi foreldris þann hluta daggjaldsins sem er niðurgreiddur og innheimtir þá fjárhæð á sérstöku eyðublaði mánaðarlega. Foreldrar greiða þá upphæð sem eftir stendur í upphafi hvers mánaðar. Dagforeldrar skila yfirliti mánaðarins til Dalabyggðar á útfylltum eyðublöðum fyrir hver mánaðamót. Yfirlitið skal vera vottað af viðkomandi foreldri. Dagforeldrar fá endurgreiðslur lagðar inn á bankareikning 5. hvers mánaðar.
4) Viðbótarniðurgreiðsla er greidd vegna systkina sem eru bæði hjá dagforeldrum. Einnig ef annað barnið er hjá dagforeldri og hitt í leikskóla. Sjá lið 6.
5) Daggjöld eru niðurgreidd í 11 mánuði á ári fyrir hvert barn.
6) Niðurgreiðslur eru skv. eftirfarandi gjaldskrá
| |
|
Flokkur 1 |
Flokkur 2 |
Flokkur 3 |
|
|
|
Hjón
/sambúð |
Annað for.
í námi |
Einst.for.
/báðir í námi |
Niðurgreidd daggjöld
|
kr |
/klst |
4.933 |
5.381 |
5.829 |
|
4 |
klst |
19.732 |
21.524 |
23.315 |
|
5 |
klst |
24.665 |
26.904 |
29.144 |
|
6 |
klst |
29.598 |
32.285 |
34.973 |
|
7 |
klst |
34.530 |
37.666 |
40.802 |
|
8 |
klst |
39.463 |
43.047 |
46.631 |
|
9 |
klst |
44.396 |
48.428 |
52.460 |
Viðbótargreiðslur vegna systkina
|
kr |
/klst |
1.233 |
1.345 |
1.458 |
|
4 |
klst |
4.933 |
5.380 |
5.831 |
|
5 |
klst |
6.166 |
6.725 |
7.289 |
|
6 |
klst |
7.399 |
8.070 |
8.746 |
|
7 |
klst |
8.633 |
9.415 |
10.204 |
|
8 |
klst |
9.866 |
10.760 |
11.662 |
|
9 |
klst |
11.099 |
12.105 |
13.120 |
Reglur þessar voru samþykktar í sveitarstjórn Dalabyggðar 20. apríl 2010
Hækkun niðurgreiðslu samþykkt á fundi sveitarstjórnar 21. febrúar 2012