Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Framkvæmdaáætlun jafnréttis


  

Verkþáttur
 
Framkvæmd
 
Tímasetning
Úrtakskönnun á launum starfsmanna í sambærilegum störfum til að greina hvort um kynbundinn launamun er að ræða.
Byggðarráð
Ár hvert í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
Yfirfarnar reglur um kostnaðarþáttöku sveitarfélagsins í menntun og þjálfun starfsmanna með hliðsjón af jafnréttissjónarmiðum.
Félagsmálanefnd
Árlega í tengslum við starfsmannastefnu.
Starfsauglýsingar frá sveitarfélaginu settar fram með jafnréttissjónarmið í huga. 
Sveitarstjóri
Við birtingu auglýsinga.
Settar verklagsreglur um meðferð mála er varða kynferðislega áreitni á vinnustað.
Félagsmálanefnd
1. september 2010
Gerð skal könnun á þáttöku drengja og stúlkna á grunnskólaaldri í félags- og íþróttastarfi. 
Fræðslunefnd
Árlega í byrjun árs.
Frjáls félagasamtök hvött til að gæta jafnréttissjónarmiða í starfi sínu. 
Menningar- og ferðamálanefnd Félagsmálanefnd
Árlega við auglýsingar um styrkumsóknir.
Settar reglur um jafnréttisviðurkenningu sem veitt skal árlega. 
Félagsmálanefnd
1. september 2010
Haldið námskeið um sveitarstjórnarmál, nefndarstörf og jafnréttismál með það að markmiði að hvetja konur til jafns við karla til þáttöku í félagsstörfum. 
Byggðarráð
Að afloknum kosningum. Fyrir 1. september 2010
Sent bréf til stjórnmálaflokka til að vekja athygli á jafnréttissjónarmiðum við val á fulltrúum til starfa í nefndum.
Félagsmálanefnd
Að afloknum kosningum 1.6.2010
Jafnréttisáætlun sett á vefsíðu sveitarfélagsins.
Starfsmaður félagsmálanefndar
1. september 2010
Kynningarfundir með starfsmönnum og kjörnum fulltrúum.
Byggðarráð
1. september 2010
Jafnréttisáætlun send út á hvert heimili í sveitarfélaginu ásamt verklagsreglum um veitingu jafnréttisviðurkenningar.
Félagsmálanefnd og starfsmaður
Janúar ár hvert