Vatnsveita - gjaldskrá
1. grein
Vatnsgjald Vatnsveitu Dalabyggðar er 0,32% af fasteignamati fyrir íbúðarhúsnæði og annað húsnæði sem tengt er vatnsveitunni.
2. grein
Aukavatnsgjald skv. 10. gr. reglugerðar fyrir vatnsveitur sveitarfélaga nr. 421/1992, skal vera 13 krónur á hvern mældan eða áætlaðan rúmmetra vatns.
3. grein
Leigugjald vatnsmæla samanber 11 gr. ofangreindrar reglugerðar fer eftir sverleika heimæðar. Leigugjald skal greiða árlega og vera sem hér segir:
| < 50 mm sverleiki |
4.000 |
kr |
| 50-100 mm sverleiki |
10.000 |
kr |
| >100 mm sverleiki |
20.000 |
kr |
Vatnsnotandi skal greiða kostnað við uppsetningu á mæli samkvæmt reikningi.
4. grein
Heimæðargjald skal taka mið af gerð stærð og lengd heimæðar samkvæmt breytingum á lögum 81/1991 gerðar í desember 1995. Miðað er við að ídráttarrör hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá lóðarmörkum að inntaksstað mannvirkisins og frágangur hafi verið samþykktur af tæknideild Dalabyggðar.
| Þvermál inntaks |
Fastagjald |
|
Metragjald |
|
| 32 mm |
45.000 |
kr |
500 |
kr |
| 40 mm |
60.000 |
kr |
600 |
kr |
| 50 mm |
75.000 |
kr |
700 |
kr |
| 63 mm |
90.000 |
kr |
800 |
kr |
| 75 mm |
105.000 |
kr |
900 |
kr |
| 90 mm |
120.000 |
kr |
1.000 |
kr |
Heimæðargjald fyrir inntök stærri en 90 mm verður reiknað sérstaklega af tæknideild Dalabyggðar.
Aukakostnaður: Vanti ídráttarrör eða að ídráttarrör reynist ónothæft greiðist 2.500 kr/m vegna skurðgraftar og ídráttarrörs.
5. grein
Gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar er samin á grundvelli laga nr. 32/2004 um vatnsveitur og reglugerð fyrir vatnsveitur sveitarfélaga nr. 421/1992, með síðari breytingum og tekur þegar gildi. Samhliða fellur út gildi fyrri gjaldskrá nr. 66/2001.
Gjaldskráin var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 18. janúar 2011.