Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Gjaldskrá fyrir hirðingu og eyðingu sorps  í Dalabyggð 

1. grein

Sveitarstjórn Dalabyggðar er heimilt, í samræmi við 7. gr. reglugerðar nr. 171/1995 um sorphirðu í Dalabyggð, að leggja á sérstakt gjald vegna hirðingar og eyðingar sorps (sorpgjald) í Dalabyggð.  Gjald þetta skal innheimta með fasteignagjöldum ár hvert.

2. grein

Gjaldið vegna hirðingar og eyðingar sorps er árlega sem hér segir:

  a)

Íbúðir í þéttbýli

27.700

kr

  b)

Aukasorpílát í þéttbýli   

13.800

kr

  c)

Íbúðir í dreifbýli og frístundahús 

11.900

kr

Gjald þetta skal innheimta með fasteignagjöldum ár hvert.

3. grein

Gjaldskrá söfnunarstöðvar í Búðardal er sem hér segir:

Flokkur

 

 

  Pressanlegur úrgangur

15,82

kr/kg með vsk

  Ópressanlegur úrgangur

23,73

kr/kg með vsk

  Málað timbur eða plasthúðað

23,73

kr/kg með vsk

  Óflokkaðir málmar

3,97

kr/kg með vsk

  Blandaður pappír

17,43

kr/kg með vsk

  Dagblöð og tímarit

17,43

kr/kg með vsk

  Plastumbúðir, harðplast

15,82

kr/kg með vsk

  Fatnaður

15,82

kr/kg með vsk

 

Móttökugjald fyrir einstaka farma

 

 

   0,25 m3

832

kr/m3 með vsk

   0,50 m3

1.664

kr/m3 með vsk

   0,75 m3

2.496

kr/m3 með vsk

   1,00 m3

3.327

kr/m3 með vsk

 

Gert er ráð fyrir að komið sé með flokkað sorp á söfnunarstöðina að öðrum kosti greiðist 20% álag á ofangreind verð.

 

Ekki er innheimt gjald af íbúum sem koma með tilfallandi úrgang frá heimilum sínum í hóflegu magni (< 3m3 í hvert skipti).

 

Atvinnurekstur skal ávallt greiða fyrir móttöku og flokkun söfnunarstöðinni.

4. grein

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 20. desember 2011 staðfestist hér með samkvæmt stoð í 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1123/2010

 
Samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 20. desember 2011.