Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Reglur um niðurgreiðslu daggjalda

vegna dagvistunar á einkaheimilum


 

1. Samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Dalabyggðar skal greiða niður daggjöld vegna barna sem eru í daggæslu í heimahúsum og eiga lögheimili í Dalabyggð. Reglur þessar gilda einnig um foreldra barna sem eiga lögheimili í Dalabyggð en dvelja tímabundið vegna náms eða starfa í öðru sveitarfélagi. Réttur til niðurgreiðslu gildir þar til leikskólapláss býðst.


2. Niðurgreiðslur eru háðar eftirfarandi skilyrðum:

a) Að dagforeldri hafi leyfi yfirvalda til daggæslu á heimili sínu.

b) Að barnið sé á aldrinum 6 mánaða til 6 ára (að upphafi skólagöngu).

c) Að fyrir liggi þjónustusamningur milli dagforeldris, foreldra og fulltrúa Dalabyggðar.

d) Námsmenn verða að skila vottorði skóla um fullt dagnám í upphafi hverrar annar.


3) Dagforeldri dregur frá reikningi foreldris þann hluta daggjaldsins sem er niðurgreiddur og innheimtir þá fjárhæð á sérstöku eyðublaði mánaðarlega. Foreldrar greiða þá upphæð sem eftir stendur í upphafi hvers mánaðar. Dagforeldrar skila yfirliti mánaðarins til Dalabyggðar á útfylltum eyðublöðum fyrir hver mánaðamót. Yfirlitið skal vera vottað af viðkomandi foreldri. Dagforeldrar fá endurgreiðslur lagðar inn á bankareikning 5. hvers mánaðar.


4) Viðbótarniðurgreiðsla er greidd vegna systkina sem eru bæði hjá dagforeldrum. Einnig ef annað barnið er hjá dagforeldri og hitt í leikskóla. Sjá lið 6.

          
5) Daggjöld eru niðurgreidd í 11 mánuði á ári fyrir hvert barn.


6) Niðurgreiðslur eru skv. eftirfarandi gjaldskrá:

                       

                        Niðurgreidd daggjöld             Viðbótargr. v/systkina

 

Vistunartími

 Flokkur

1

 Flokkur

2

 Flokkur

3

 Flokkur

1

 Flokkur

2

Flokkur

3

Niðurgreiðsla pr. klst

4.636

5.057

5.478

1.159

1.264

1.370

4 stundir

18.543

20.226

21.912

4.636

5.057

5.478

5 stundir

23.179

25.283

27.390

5.795

6.321

6.848

6 stundir

27.815

30.339

32.868

6.954

7.585

8.217

7 stundir

32.450

35.396

38.346

8.113

8.849

9.587

8 stundir

37.086

40.452

43.824

9.272

10.113

10.956

9 stundir

41.722

45.509

49.302

10.430

11.377

12.326

Flokkur 1. Hjón eða í sambúð

Flokkur 2. Annað foreldri í námi

Flokkur 3. Einstætt foreldri eða báðir foreldrar í námi

 

Reglur þessar voru samþykktar í sveitarstjórn Dalabyggðar 20. apríl 2010.