Hundahald - gjaldskrá
Gjaldskrá nr. 816/2002, fyrir hundahald í Dalabyggð
1. grein
Árgjald fyrir að halda hund sbr. lið e í 2. grein samþykktar um hundahald í Dalabyggð nr. 20/1998, skal vera kr. 8.000 fyrir allt árið eða hluta úr ári.
Gjalddagi er 1. mars og eindagi 1. júlí. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga verði gjaldið ekki greitt í síðasta lagi á eindaga.
2. grein
Handsömunargjald samkvæmt 7. grein framangreindrar samþykktar skal vera kr. 5.000 auk þess sem greiða skal kr. 700 í gjald fyrir hvern dag sem hundurinn er í haldi.
3. grein
Framangreind gjaldskrá er samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar samkvæmt 25. grein laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt um hundahald í Dalabyggð.
Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi.
Búðardal, 15. október 2002.
Haraldur L. Haraldsson sveitarstjóri.
Ítarefni
Samþykkt um hundahald í Dalasýslu