Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar


 

I. KAFLI. Gildissvið

 1. grein

Gjaldskrá þessi gildir fyrir hafnir í Dalabyggð og er sett skv. heimild í 17. gr. laga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1. Gildir frá 01.01.2010.

 

II. KAFLI. Um hafnargjöld

 2. grein

Við ákvörðun hafnargjalda samkvæmt stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.

 

 3. grein

Af öllum skipum skal greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

 

Lestargjöld

 4. grein

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 9,20 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði. Undanþegin greiðslu lestargjalds eru varðskip og skip sem eru gerð út til vísindalegra rannsókna, svo og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

 

Bryggjugjöld

 5. grein

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 4,50 á mælieiningu skv. 2. gr. fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum sem mánaðargjald, kr. 60,-  á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 6.426,-.
Gjald fyrir báta er nýta hafnalegu skemur en 10 daga í mánuði reiknast sem hér segir.

Fyrir 1-3 daga 25% af mánaðargjaldi, 4-6 daga 50% og 7-10 daga 75%. Fyrir lengri tíma

en 10 daga reiknast fullt mánaðargjald.
Skip og bátar, sem ekki eru í rekstri né leggja upp afla hjá höfnum Dalabyggðar, skulu greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og njóta ekki afsláttarkjara í formi mánaðargjalda. Skip og bátar ekki í rekstri teljast þau skip eða bátar sem legið hafa lengur en tvo mánuði í höfn og hafa ekki greitt önnur gjöld til hafnanna næstu þrjá mánuði á undan.

 

 6. grein

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

 

 7. grein

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

 

 8. grein

Af vörum sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald. Af vörum sem fara eiga til útlanda en umskipað er í innlendri höfn skal greiða fullt vörugjald í fyrstu lestunarhöfn.

 

 9. grein

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a) Umbúðir sem endursendar eru.

b) Kol, olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.

c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.

d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

 

 10. grein

Vörugjald skal reikna eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips er skylt að láta gjaldkera hafnarinnar í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

 

 11. grein

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá

1. fl.: Gjald kr. 196,- fyrir hvert tonn: Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.: Gjald kr. 368,- fyrir hvert tonn: Lýsi og fiskimjöl.

3. fl.: Gjald kr. 378,- fyrir hvert tonn:  a) Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda.  b) Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir. Vélar og tæki hvers konar og varahlutir til þeirra, svo sem heimilis- og skrifstofuvélar, bifreiðar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki, húsbúnaður, vefnaðarvara og fatnaður. Útvarps- og sjónvarpstæki, hljóðfæri, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur allskonar, vín, tóbak, sælgæti, snyrtivörur og lyf.  c) Vörur sem ekki verða flokkaðar annars staðar eftir þyngd. Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt. Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum ferðamanna, enda ferðast eigendur með sama skipi.

4. fl.: Gjald 1,60%: Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega. Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 89,50.

 

Farþegagjald

 12. grein

Heimilt er að taka farþegagjald við komu og brottför fyrir hvern fullorðinn farþega og hálft gjald fyrir hvert barn sem fer um höfnina, aðra en farþega ferja og flóabáta sem njóta styrks samkvæmt vegalögum. Byggðarráð ákveður gjöld fyrir aðra þjónustu hafnarinnar samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum.

 

Sorpeyðing

 13. grein

Gjald fyrir sorpeyðingu reiknast miðað við brúttótonnatölu skipa og báta og er eftirfarandi:

 0-10 brt. kr. 800,-  pr. mán.

11-20 brt. kr. 1200,-  pr. mán.

21-100 brt. kr. 2000,-  pr. mán.

Bátar og skip 100 brt. og yfir  kr. 4.000,-  pr. mán.

Sorpeyðing fyrir einstaka losun kr. 3.900 hvert skipti.

 

Vatnssala

 14. grein

Gjald fyrir vatn afgreitt frá bryggju er miðað við brúttótonnatölu skipa og báta eða innheimt skv. áætluðu magni og er eftirfarandi:

 Áætlað magn kr. 173 pr. tonn.

 Undir 30 brt. kr. 929,- á mánuði.

 Yfir 30 brt. kr. 173,-  á tonn.

 Afgreiðslugjald að degi kr. 2.500.

 Afgreiðslugjald á yfirvinnutíma kr. 5.000.

 

Rafmagn

 15. grein

Rafmagnssala til skipa og báta er skv. taxta rafveitu með 10% álagi.

 

Kranagjald

 16. grein

Kranagjald skal greitt skv. eftirfarandi:

a) Frístundabátar og fley: 150 kr. hver hífing.

b) Kranagjald smábáta: 300 kr. fyrir hvert byrjað tonn.

c) Kranagjald grásleppubáta: 2.500 kr. pr. mán.

 

Hafnarverndargjald

 17. grein

Gjald vegna hafnarverndar er eftirfarandi:

Fastagjald kr. 21.000.

Öryggisgæsla:

a) Dagvinna pr. klst. kr. 2.500.

b) Yfirvinna pr. klst. kr. 5.000.

 

III. KAFLI. Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda.

18. grein

Skrifstofa Dalabyggðar sér um innheimtu allra hafnargjalda og skal greiða gjöldin á skrifstofu sveitarfélagsins. Á öll gjöld í gjaldskrá þessari leggst 24,5% VSK að undanskildu farþegagjaldi sbr. 12. grein og þjónustu við erlend skip. Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu dráttarvexti á skuldina.

 

19. grein

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til hafnarinnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt að afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinunum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda. Að svo miklu leyti sem í gjaldskrá þessari eru ekki ákveðnir fastir gjalddagar á gjöldum skal greiða þau áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

 

 20. grein

Vörugjald greiðir móttakandi af vörum sem koma til hafnarinnar og sendandi af vörum sem fluttar eru úr höfninni. Ef margir eiga vörur sem fluttar eru með sama skipi skal afgreiðslumaður skipsins standa hafnarsjóði skil á greiðslum. Ef skip hefur ekki farm sinn skráðan ber skipstjóri ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt. Hafnarsjóður hefur haldsrétt í skráningar- og þjóðernisskírteinum skips til tryggingar gjaldinu. Aflagjald og vörugjald af útflutningi skal auk þess tryggt með veði í útflutningsbirgðum þess aðila er skuldar gjöldin.

 

 21. grein

Öll gjöld samkvæmt þessari reglugerð má taka fjárnámi. Skipagjöldin eru tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum sbr. ákvæði 21. gr hafnalaga nr. 61/2003.

 

IV. KAFLI. Gildistaka.

 22. grein

Gjaldskrá þessi fyrir hafnir Dalabyggðar er samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar á fundi 17. desember 2009, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 til þess að öðlast þegar gildi.