Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og

rotþróargjald í Dalabyggð.


1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalabyggð og hreinsun rotþróa í Dalabyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 198/2004 um fráveitur í  Dalabyggð.

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

Einbýlishús

    45.000 kr / hús 

 

Fjölbýlishús

15.000 kr / íbúð

 

Annað húsnæði

60 kr / m3

 að 4000 m3 

 

15 kr / m3

 > 4000 m3 

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur. 

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum.  Fráveitugjald skal nema 0,19% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald.  Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

  

Stærð í lítrum

Rotþróargjald

 

       0 -  2.000

6.300 kr

 

2.001 -  4.000

7.900 kr

 

4.001 -  6.000

9.000 kr

 

6.001 -  8.000

11.100 kr

 

8.001 - 10.000

14.700 kr

 

         > 10.000

+ 4.200 kr/m3

 

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra.

Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 2.500.

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi staðfestist sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 20. desember 2011 staðfestist  hér með samkvæmt X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 og 25. gr. laga um hollustuhætti- og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1124/2010.

 

Samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 20. desember 2011.