Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fasteignagjöld og lóðarleiga 2012


A. Fasteignaskattur

a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.

c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.

 

B. Lóðarleiga 

a) Íbúðarhúsnæði: 1,70% af fasteignamati lóðar.

b) Atvinnuhúsnæði: 2,00% af fasteignamati lóðar.

 

Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja 

Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 og reglur Dalabyggðar.

 

Elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og holræsagjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu. Afslátturinn er tekjutengdur. Við ákvörðun afsláttar skulu notaðar eftirfarandi viðmiðanir:

 

Tekjumörk einstaklinga kr

Afsl.

 

Allt að  2.000.000

100

%

Allt að  2.200.000

75

%

Allt að  2.400.000

50

%

Allt að  2.600.000

25

%

 

Tekjumörk hjóna kr

Allt að  3.300.000

100

%

Allt að  3.630.000

75

%

Allt að  3.960.000

50

%

Allt að  4.290.000

25

%

 

Innheimta

Fasteignagjöldin verða innheimt með rafrænum greiðsluseðlum sem hægt er að nálgast í netbanka. Gjaldendum er einnig bent á þann möguleika að láta viðskiptabanka sinn sjá um beingreiðslur á fasteignagjöldum.

 

Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur séu öll gjöld greidd fyrir 15. febrúar.

 

Fjöldi gjalddaga er almennt 6, sá fyrsti 5. febrúar og sá síðasti 5. júlí. Ef heildargjöld greiðanda eru undir kr. 12.000 þá er einungis einn gjalddagi, 5. apríl.

 

Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef fasteignagjöldin eru ennþá ógreidd mánuði eftir eindaga verða þau send í innheimtu.

 

Samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 20. desember 2011

 

Álagningarseðla fasteignagjalda má nálgast rafrænt á síðunni island.is.