Gjaldskrá fyrir byggingar-, þjónustu- og
framkvæmdaleyfisgjöldum í Dalabyggð
1. grein
Almenn ákvæði
1.1. Við útgáfu byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.
1.2. Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.
2. grein
Byggingarleyfisgjald
2.1. Fyrir byggingarleyfi skv. 43. gr., sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga, skal greiða gjöld sem hér segir
|
Afgreiðslugjald við móttöku byggingarleyfisumsóknar |
6.400 |
kr |
|
Gjald á rúmmetra í nýbyggingu eða viðbyggingu |
|
|
|
Óeinangraðar geymslur; skemmur, hlöður og haughús |
45 |
kr/m3 |
|
Aðrar byggingar; þ.m.t. íbúðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, frístundahús, gripahús, bílskúrar, bílskýli, bátaskýli, veitinga- og gistihús |
64 |
kr/m3 |
2.2. Rúmmetragjald skv. gr. 2.1. reiknast af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST 50 án svala og C-rýma.
3. grein
Þjónustugjöld
3.1. Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir, sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga
|
Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar |
6.400 |
|
Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla |
25.500 |
|
Lokaúttekt |
35.700 |
|
Úttekt vegna meistaraskipta |
25.500 |
|
Úttekt vegna byggingarstjóraskipta |
25.500 |
|
Úttekt vegna rekstrarleyfis |
25.500 |
|
Úttekt á fóðursílói |
12.500 |
|
Húsaleiguúttektir á íbúðarhúsnæði |
25.500 |
|
Húsaleiguúttektir á atvinnuhúsnæði |
35.700 |
|
Gjald fyrir útkall þegar verk reynist ekki úttektarhæft |
6.400 |
|
Mæling lóðar |
39.300 |
|
Mæling fyrir húsi á lóð |
24.460 |
|
Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 1-5 fastanr. í húsi |
12.900 |
|
Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fnr.>5 |
3.300 |
|
Tímabundin stöðuleyfi |
12.500 |
|
Fyrir hverja auka útsetningu lóðar/húss; pr. mælingu |
24.460 |
|
Staðfestingargjald vegna lóðarúthlutunar, óendurkræft |
20.000 |
|
Grenndarkynning, minniháttar |
10.300 |
|
Grenndarkynning, umfangsmikil |
44.700 |
|
Breyting á lóðarleigusamningi |
27.500 |
|
Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs |
15.600 |
3.2. Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu byggingarleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu byggingarleyfis.
3.3. Fyrir yfirferð nýrra eða breyttra hönnunargagna eftir útgáfu byggingarleyfis greiðast kr. 6.400 til 64.000 eftir umfangi. Gjaldið greiðist við afhendingu gagna.
3.4. Fyrir breytingar á samþykktu deiliskipulagi ber viðkomandi hagsmunaaðili allan kostnað af breytingunum.
4. grein
Framkvæmdaleyfisgjald
4.1. Fyrir framkvæmdaleyfi samkvæmt 27. gr. sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir:
|
Afgreiðslugjald við móttöku framkvæmdaleyfisumsóknar |
6.400 |
|
Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar |
6.400 |
|
Lágmarksgjald framkvæmdaleyfis |
11.200 |
4.2. Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.
4.3. Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.
4.4. Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins hluti af kostnaði þess við útgáfu leyfis.
5. grein
Gjalddagi, lögveð
5.1. Gjalddagi afgreiðslugjalda er við móttöku umsókna.
5.2. Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis.
5.3. Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis.
5.4. Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingarleyfi falli úr gildi eða umsókn dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endur-greidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.
5.5. Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfis-gjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjár-námi, sbr. 3. mgr. 55. gr. skipulags- og byggingarlaga.
6. grein
Verðlagsbreytingar
6.1. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2009 og breytast 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni. Byggingarvísitala í desember er 500.7 stig
6.2. Rúmmetragjald byggingarleyfis skal vera 0,7% af afgreiðslugjaldi vegna óeinangraðra geymslna, skemma, hlaða og gripahúsa, en 1% af afgreiðslugjaldi vegna annarra bygginga og skal námundað í heila krónu. Önnur gjöld skulu námunduð í næsta heila hundrað.
7. grein
Gildistaka o.fl.
7.1. Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og byggingarreglugerð nr. 441/1998 með síðari breytingum, tekur gildi við birtingu.
7.2. Með samþykkt gjaldskrár þessarar fellur úr gildi eldri gjaldskrá byggingarleyfis-, þjónustu– og framkvæmdaleyfisgjalda Dalabyggðar.
Samþykkt í sveitarstjórn Dalabyggðar 17. desember 2009
Bogi Kristinsson Magnusen, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B-deild stjórnartíðinda– Útgáfud.: xxxxxxx