Gjaldskrá fyrir sérstakt búfjáreftirlit
1. grein
Gjald fyrir sérstaka haustskoðun sbr. 11. gr. laga nr. 103/2002, um búfjáreftirlit o.fl., skal miðast við tímaeiningu. Gjald á tímaeiningu sem er ein klst. skal vera kr. 5.000,-
2. grein
Eftirlitsgjald sbr. 15. og 16. gr. laga nr. 103/2002, um búfjáreftirlit o.fl., skal vera kr. 5.000, - pr. klst.
3. grein
Aksturskostnaður vegna ferða eftirlitsmanns sbr. 1. og 2. gr., skal greiddur af hlutaðeigandi umráðamanni búfjár. Kostnaður pr. ekinn km miðast við gjald sem ákveðið er af ferðakostnaðarnefnd fjármálaráðuneytisins.
4. grein
Virðisaukaskattur reiknast aukalega á hverja gjaldtöku skv. 1., 2. og 3. gr.
5. grein
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt hefur verið í sveitarstjórn Dalabyggðar, er sett með heimild í 4. mgr. 10. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002 og tekur þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytið, 26. ágúst 2005.
F.h. r.
Hákon Sigurgrímsson (sign).
Atli Már Ingólfsson (sign.)
Staðfest í sveitarstjórn Dalabyggðar 17. desember 2009.