Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Sveitarstjórn, fundur nr. 83

Dags. 21.2.2012

Hljóðupptaka fundarins

 

Sveitarstjórn Dalabyggðar fundargerð 83. fundar


Árið 2012, þriðjudaginn 21. febrúar kl. 17:45 kom  sveitarstjórn Dalabyggðar saman til fundar í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal.  Fundinn sátu:  Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti, Halla Steinólfsdóttir, Guðrún Ingþórsdóttir, Jóhannes Hauksson, Eyþór Jón Gíslason, Guðrún Jóhannsdóttir og Sveinn Pálsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 
Fundargerð var færð á tölvu.


Oddviti setur fund og býður fundarmenn velkomna.

 

Gengið var til dagskrár.


Dagskrá:


1. Skýrsla sveitarstjóra 
Málefni Silfurtúns hafa verið töluvert á mínum borðum en eins og kunnugt er hefur nýlega ráðinn hjúkrunarforstjóri sagt lausu starfi sínu.  Formaður byggðarráðs hefur tekið að sér daglega stjórn heimilisins tímabundið og ráðinn hefur verið hjúkrunarfræðingur í hálft starf.  Unnið er að endurskipulagningu reksturs og gert ráð fyrir að nýtt vaktaskipulag taki gildi í byrjun apríl.
Fundur hefur verið haldinn með formönnum fjallskiladeilda og ég hef setið stjórnarfund hjá Sorpurðun Vesturlands.
Undirbúningur er hafinn vegna nýs urðunarstaðar fyrir óhvarfgjarnan úrgang í nágrenni Búðardals.  Ég hef unnið drög að reglum um úthlutun leiguíbúða sem lögð voru fyrir fund byggðarráðs í síðustu viku.

 

Eyþór tekur til máls og þakkar hann fyrir hönd sveitarstjórnar Elínu Baldursdóttur störf í þágu Dalabyggðar og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

 

 Almenn mál:

 
2. Fóðuriðjan Ólafsdal ehf – hlutafé - 1101007
Með bréfi 16. febrúar 2012 gerir Búnaðarfélag Saurbæinga Dalabyggð gagntilboð þess efnis að Dalabyggð kaupi allt hlutafé félagsins í Fóðuriðjunni Ólafsdal ehf. bæði í A- og B- flokki á kr. 750.000,-

Sveitarstjórn samþykkir gagntilboð Búnaðarfélagsins.
 
3. Ljárskógamál – bréf Skúla Einarssonar dags. 17.01.2012 - 1103021
Skúli fer fram á að fá afrit af skjölum sem lágu til grundvallar ákvörðum sveitarstjórnar að endurgreiða Fjósahlut í Ljárskógum.  Einnig fer Skúli fram á að sveitarstjórn staðfesti að sveitarfélagið sé reiðubúið fyrir sitt leyti að standa við afsal Laxárdalshrepps dags. 31.05.1994.

 

Samkvæmt minnisblöðum LEX lögmannsstofu þar sem m.a. er vitnað í dóm Hæstaréttar í máli nr. 209/2010 kemur fram að allar færslur eigna innan eða utan félagsins séu ólögmætar að hálfu einstakra félagsmanna.  Veiðifélagið hefur ákveðið að leiðrétta arðskrá sína þannig að Fjósahlutur færist aftur til Dalabyggðar.  Á þessum grunni þótti sveitarstjórn sanngjarnt að endurgreiða „söluverðið“ að frádregnum arðgreiðslum.  Afsalið frá 31. maí 1994 hefur því ekkert gildi að mati sveitarstjórnar.

Ofangreind bókun samþykkt með 4 atkvæðum.  2 sitja hjá.

Sveitarstjóra er falið að senda Skúla afrit að umbeðnum gögnum.
 
4. Almenningssamgöngur á Vesturlandi – samningur dags. 29.12.2011 - 1108004
Til máls tekur Eyþór.
Fyrir liggur undirritaður samningur um almenningssamgöngur á Vesturlandi milli Vegagerðarinnar og SSV.  Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur þegar samþykkt drög að samningnum fyrir sitt leyti.
Sveitarstjórn tilnefnir Ingveldi sem fulltrúa í vinnuhóp sem móta á fyrirkomulag almenningssamgangna á Vesturlandi.
Sveitarstjórn staðfestir samninginn fyrir sitt leyti.

 

5. Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 09.03.2012 - 1202021
Samþykkt að Halla verði fulltrúi Dalabyggðar á aðalfundinum og taki sæti sem stjórnarmaður.

 

6. Aðalfundur Menningarráðs Vesturlands 25.04.2012 - 1202015
Samþykkt að Guðrún Jóhannsdóttir verði fulltrúi Dalabyggðar á aðalfundinum og Halla haldi áfram sæti sem stjórnarmaður.

 

7. Lausaganga sauðfjár á Skógarströnd – br. dags. 12.02.2012 - 1006010
Með bréfinu er vísað í fyrri samskipti Landgræðslufélags Skógarstrandar og Dalabyggðar vegna óska Landgræðslufélagsins um að Dalabyggð lýsi yfir lausagöngubanni innan girðinar er félagið hefur fyrirhugað að girða á svæðinu.  Landgræðslufélagið lýsir því yfir að það sé tilbúið til að taka á sig:
- allt viðhald á girðingunni
- tryggja að hún sé fjárheld
- sleppi fé samt inn fyrir girðingu annast smölun á því fé og ekki krefja fjáreigendur um skaðabætur fyrir skemmdum á gróðri.

 

Sveitarstjórn ítrekar fyrri afstöðu sína og leggst ekki á móti girðingunni sem slíkri enda er það réttur landeigenda að girða sitt land.  Sveitarstjórn hafnar hins vegar alfarið að lýsa yfir lausagöngubanni sauðfjár innan slíkrar girðingar þrátt fyrir ofangreinda yfirlýsingu landgræðslufélagsins.  Sveitarstjórn telur vandséð að slík yfirlýsing firri sveitarfélagið ábyrgð standi aðilar ekki við yfirlýsingar sínar.  Einnig telur sveitarstjórn að slík yfirlýsing verði og fordæmisgefandi fyrir önnur svæði í sveitarfélaginu.

Bókun samþykkt með 5 atkvæðum.  1 situr hjá.

 

8. XXVI Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1202024
Halla er tilnefnd aðalfulltrúi og Ingveldur varafulltrúi.
Samþykkt í einu hljóði.

 

9. Skipun aðalfulltrúa á aðalfund Veiðifélags Laxár í Hvammssveit og varafulltrúa á aðalfund Veiðifélags Laxdæla. 
Jóhannes er tilnefndur aðalfulltrúi á aðalfund Veiðifélags Laxár í Hvammssveit  og Eyþór til vara á aðalfundi Veiðifélags Laxdæla og Veiðifélags Laxár í Hvammssveit.

Samþykkt í einu hljóði.

 

Almenn mál – umsagnir og vísanir:

 
10. Frumvarp um menningarminjar  - 1202005
Lagt fram til kynningar.


11. Samgönguáætlun 2011-2014  - 1202003
Sveitarstjórn lýsir yfir óánægju með hve lítið fjármagn er til viðhalds og framkvæmda innan Dalabyggðar og hvetur til að aukið verði við framlög til tengivega og viðhaldsverkefna.

 

12. Samgönguáætlun 2011-2022 - 1202004
Sveitarstjórn lýsir yfir óánægju með hve lítið fjármagn er til framkvæmda innan Dalabyggðar á tímabilinu.  Hvatt er til þess að vegum um Skógarströnd, Laxárdalsheiði og um Klofningsveg verði bætt á áætlunina.  Einnig verði gert átak í að breikka einbreiðar brýr á Vestfjarðavegi.

 

13. Frv. til br. á lögum um stjórn fiskveiða  - 1202018
Lagt fram til kynningar.


Fundargerðir til staðfestingar:

 
14. Fundargerð 101. fundar byggðarráðs frá 3.2.2012. 
Fundargerðin samþykkt í einu hljóði.

 

15. Fundargerð 102. fundar byggðarráðs frá 7.2.2012. 
Fundargerðin samþykkt í einu hljóði.

 

16. Fundargerð 103. fundar byggðarráðs frá 16.2.2012. 
10. liður.  Reglur um úthlutun á leiguíbúðum samþykktar í einu hljóði.


11. liður.  Gjaldskrár fyrir leiguíbúðir, íþróttamiðstöð og félagsheimili samþykktar í einu hljóði. Einnig samþykkt í einu hljóði að hækka niðurgreiðslur til dagforeldra sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs frá dagsetningu gildandi samþykktar til ársloka 2011.

 

12. liður. Byggðarráð leggur til að íbúðarhúsið Skuld í Saurbæ verði auglýst til sölu. Samþykkt í einu hljóði.

 

Fundargerðin að öðru leyti samþykkt í einu hljóði.

 

17. Fundargerð 45. fundar fræðslunefndar frá 2.2.2012. - 1202008
6. liður. Fræðslunefnd hvetur til þess að sveitarstjórn láti skoða kostnað við að koma upp þrautabraut fyrir skólahreysti á leiksvæði Auðarskóla.

 

Samþykkt að vísa tillögunni til byggðarráðs.

 

Fundargerðin að öðru leyti samþykkt í einu hljóði.

 

18. Fundargerðir formannafunda fjallskilanefnda frá 1.2.2012 
Á fundunum var sveitarstjórn hvött til að semja samþykkt um búfjárhald í samræmi við heimild í lögum.


Samþykkt að vísa tillögunni til byggðarráðs.

 

Fundargerðirnar að öðru leyti samþykktar í einu hljóði.

 

 Fundargerðir til kynningar: 


19. Fundargerð 59. fundar Menningarráðs frá 17.11.2011 - 1202009
20. Fundargerð 60. fundar Menningarráðs frá 4.1.2012 - 1202010
21. Fundargerð 61. fundar Menningarráðs frá 13.1.2012 - 1202011
22. Fundargerð 62. fundar Menningarráðs frá 14.1.2012 - 1202012
23. Fundargerð 63. fundar Menningarráðs frá 1.2.2012  - 1202013
24. Fundargerð 82. fundar sveitarstjórnar frá 17.01.2012

 
  Mál til kynningar:

 
25. Ársskýrsla Fjölbrautarskóla Vesturlands - 1202002
26. Stjórnsýsluskoðun KPMG - 1202017

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

 
Næsti fundur sveitarstjórnar er áætlaður þriðjudaginn 20. mars 2012.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:30.

  
Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti  

Halla Steinólfsdóttir varaoddviti

Guðrún Jóhannsdóttir
Guðrún Ingþórsdóttir

Eyþór Jón Gíslason
Jóhannes Haukur Hauksson

Sveinn Pálsson, sveitarstjóri

 



Til baka