Sveitarstjórn, fundur nr. 82
Dags. 17.1.2012
Hljóðupptaka fundarins
Sveitarstjórn Dalabyggðar fundargerð 82. fundar
Árið 2012, þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:55 kom sveitarstjórn Dalabyggðar saman til fundar í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Fundinn sátu: Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti, Halla Steinólfsdóttir, Guðrún Ingþórsdóttir, Jóhannes Hauksson, Eyþór Jón Gíslason, Guðrún Jóhannsdóttir, Daði Einarsson og Sveinn Pálsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Fundargerð var færð á tölvu.
Oddviti setur fund og býður fundarmenn velkomna.
Oddviti leggur til að á dagskrá verði tekin fundargerð 35. fundar umhverfis og skipulagsnefndar frá 12. janúar 2012 undir lið 4, bréf Matvælastofnunar dags. 14. nóvember 2011 undir lið 8 og umfjöllun um málefni löggæslunnar í Dölum undir lið 9.
Samþykkt samhljóða.
Gengið var til dagskrár.
Dagskrá:
1. Skýrsla sveitarstjóra.
Frá síðasta fundi hef ég unnið að þriggja ára fjárhagsáætlun 2013-2015 sem er til síðari umræðu á þessum fundi. Ég sat fund með ferðaþjónustuaðilum í Dölum og hef ásamt rekstraraðilum unnið að nýrri gjaldskrá fyrir íþróttamiðstöð sem verður til umræðu á næsta fundi byggðarráðs. Ég fór í viðtal hjá endurskoðendum vegna árlegrar stjórnsýsluskoðunar og von er á skýrslu þeirra innan tíðar.
Ég hef ásamt skrifstofustjóra og aðalbókara setið námskeið vegna bókhaldskerfisins sem verið er að taka upp. Búið er að setja upp fundargerðakerfi og fundarmannagátt og ætti hvorutveggja að vera komið í notkun fyrir febrúarfundi.
Framundan er álagning fasteignagjalda og innleiðing fyrrnefndra kerfa.
Fundargerðir til staðfestingar:
2. Fundargerð 100. fundar byggðarráðs frá 13.01.2012.
Fundargerðin samþykkt í einu hljóði.
3. Fundargerð 44. fundar fræðslunefndar frá 5.01.2012.
Liður 4.
Tilraunaverkefni um ytra mat á Auðarskóla. Nefndin leggur til að auk þriggja fyrirfram ákveðinna þátta verði foreldrasamstarf tekið til skoðunar.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við Bryndísi Ástu Böðvarsdóttur um að vera fulltrúi Dalabyggðar við gerð matsins.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt í einu hljóði.
4. Fundargerð 35. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 12.01.2012
Liður 1. Deiliskipulagstillaga fyrir frístundabyggð í landi Sauðafells.
Nefndin samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að senda það til skipulagsstofnunar til yfirferðar.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðar, Álfhóla úr landi Hóla 137715.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðar, Foss 2 úr landi Foss 137851.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Liður 6.
Nefndin samþykkir vinnuferil byggingarfulltrúa Dalabyggðar vegna beitingar dagsekta á grundvelli 210. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Önnur mál.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn afmarki hentugt svæði í landi Fjósa þar sem íbúar geti ræktað kartöflur og annað grænmeti.
Sveitarstjórn tekur vel í málið og felur byggingarfulltrúa og bæjarverkstjóra að finna heppilegt svæði og undirbúa.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt í einu hljóði.
Fundargerðir til kynningar:
5. Fundargerð 81. fundar sveitarstjórnar frá 20.12.2011.
Mál til umfjöllunar / afgreiðslu:
6. Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd – frá fundi 80. - 1110021
Á 80. fundi fól sveitarstjórn sveitarstjóra að kanna hvort áhugi sé meðal nágrannasveitarfélaga á sama vatnasvæði að skipa sameiginlegan fulltrúa í nefndina.
Fulltrúi Reykhólahrepps, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir hefur tekið að sér að vera einnig fulltrúi Dalabyggðar auk fleiri sveitarfélaga.
Sveitarstjórn staðfestir skipan Ástu Sjafnar sem fulltrúa Dalabyggðar.
7. Fjárhagsáætlun 2013-2015, síðari umræða. - 1201004
Til máls tók: Sveinn
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2013-2015 fór fram 20. desember 2011.
Gert er ráð fyrir að hlutfall rekstrartekna og rekstrargjalda verði svipað og á árinu 2012 að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir að velferðarráðuneytið verði við kröfum Dalabyggðar um fjölgun hjúkrunar- og dagvistarrýma Silfurtúns til samræmis við núverandi rekstur og að rekstrarniðurstaða heimilsins og þar með Dalabyggðar verði jákvæð á árunum 2013-2015. Gert er ráð fyrir um 60 millj. kr. nýframkvæmdum á tímabilinu og að skuldir Dalabyggðar verði um 20 millj. kr. hærri í lok tímabils en í upphafi og verði þá um 76% af árlegum tekjum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2013-2015.
8. Bréf Matvælastofnunar dags. 14. nóvember 2011. - 1111021
Matvælastofnun óskar umsagnar vegna umsóknar Icelandic Mussel Company ehf. um rekstrarleyfi til ræktunar á krækling í Breiðafirði. Málaflokkurinn hefur verið fluttur frá Fiskistofu til Matvælastofnunar.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út rekstrarleyfi að því gefnu að starfsemin hamli ekki siglingum í eyjar eða að hafnarmannvirkjum í Hnúksnesi og komi ekki í veg fyrir þangslátt á svæðinu.
9. Málefni löggæslunnar í Dölum.
Á fund sveitarstjórnar komu Stefán Skarphéðinsson lögreglustjóri og Theodór Þórðarson yfirlögregluþjónn. Í máli þeirra kom m.a. fram að nýtt löggæslufrumvarp verði væntanlega lagt fyrir Alþingi á næstu vikum.
Komi til frekari breytinga á löggæsluumdæmum óskar sveitarstjórn eftir að Dalabyggð verði færð undir umdæmi lögreglustjórans á Ísafirði enda verði áfram lögregluvarðstöð í Búðardal og lögreglumaður með búsetu í sveitarfélaginu.
Efni til kynningar:
10. Fundargerð SSV frá 14.12.2011. - 1112036
11. Fundargerð Sorpurðunar Vesturlands frá 16.12.2011. - 1112035
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Næsti fundur sveitarstjórnar er áætlaður þriðjudaginn 21. febrúar 2012.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.
Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti
Halla Steinólfsdóttir varaoddviti
Guðrún Jóhannsdóttir
Guðrún Ingþórsdóttir
Eyþór Jón Gíslason
Jóhannes Haukur Hauksson
Daði Einarsson
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Til baka