Byggðarráð, fundur nr. 100
Dags. 13.1.2012
Byggðarráð Dalabyggðar
100. fundur byggðarráðs Dalabyggðar, haldinn föstudaginn 13. janúar 2012 í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hófst kl. 14:00.
Mætt voru: Eyþór J. Gíslason formaður, Jóhannes H. Hauksson, Guðrún Jóhannsdóttir og Sveinn Pálsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Fundargerð var færð á tölvu.
1. Silfurtún
Rætt um málefni Silfurtúns.
2. Umsókn samstarfsnefndar ungmennafélaganna Ólafs Pá, Stjörnunnar og Æskunnar um styrk vegna sumarstarfs barna- og unglinga sumarið 2011. - 1112024
Samþykkt að veita styrk kr. 300.000 af lið 0682 – fjárhagsár 2011.
3. Bréf Sýslumannsins í Búðardal. - 1112037
Byggðarráð samþykkir að afskrifa kröfur vegna þing- og sveitarsjóðsgjalda kr. 357.967 auk vaxta enda hafa innheimtuaðgerðir
4. Bréf Þjóðskrár Íslands dags. 23.12.2011 varðandi rafræna birtingu fasteignaálagningar 2012. - 1112034
Byggðarráð samþykkir að íbúar Dalabyggðar 67 ára og eldri fái sendan álagningarseðil fasteignagjalda ásamt skýringum í pósti eins og verið hefur en að öðru leyti verði birting seðla rafræn á island.is eins og áður nefur verið ákveðið.
5. Bréf Árneshrepps dags. 28.12.2011 varðandi embætti byggingar- og skipulagsf. - 1107019
Í bréfinu kemur fram að Árneshreppur samþykkir fyrir sitt leyti að stofnað verði byggðasamlag um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa með núverandi samstarfsaðilum.
Lagt fram til kynningar.
6. Bréf UMFÍ dags. 03.01.2012 – gisting íþróttahópa - 1201003
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið gefi kost á afsláttarkjörum varðandi gistingu íþróttahópa í skólum eftir því sem við á.
7. Samningur við Búnaðarsamband Vesturlands um forðagæslu fyrir árið 2012 - 1112020
Byggðarráð heimilar sveitarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning um búfjáreftirlit í Dalabyggð fyrir árið 2012 við Búnaðarsamtök Vesturlands.
8. Samningur við Maritech um bókhaldskerfi - 1201006
Byggðarráð staðfestir fyrirliggjandi samning.
9. Síminn – þjónustusamningur. - 1201005
Byggðarráð staðfestir fyrirliggjandi samning.
10. OneSystem – Samningur um fundargerðakerfi og fundarmannagátt. - 1112030
Byggðarráð staðfestir fyrirliggjandi samning.
11. Laugar – samningur við Ungmenna- og tómstundabúðir varðandi viðhald íbúða. - 1105025
Byggðarráð staðfestir fyrirliggjandi samning.
12. Þriggja ára áætlun 2013-2015
Vísað til sveitarstjórnar.
13. Bréf Megins ehf dags. 06.01.2012 - 1201007
Byggðarráð þakkar erindið en telur ekki fært að verða við því enda er núverandi húsnæði slökkviliðsins viðunandi.
14. Bréf UDN dags. 10.01.2012 - 1201010
Byggðarráð samþykkir að fella niður húsaleigu í íþróttahúsinu að Laugum vegna frjálsíþróttaæfinga í janúar og febrúar.
15. Hlutafjárkaup í B-flokki hlutabréfa Fóðuriðjunnar Ólafsdal
ehf. - 1201001
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerð upp lesin og samþykkt í einu hljóði.
Fundi slitið kl. 15:30
Eyþór J. Gíslason
Jóhannes H. Hauksson
Guðrún Jóhannsdóttir
Sveinn Pálsson
Til baka