Fræðslunefnd, fundur nr. 44
Dags. 5.1.2012
44. fundur fræðslunefndar Dalabyggðar, haldinn í stjórnsýsluhúsinu 5. janúar 2012, kl: 16:00.
Mættir: Elísabet Svansdóttir formaður, Ásdís Kr. Melsted, Ragnheiður Pálsdóttir, Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir og Sigrún Hanna Sigurðardóttir. Einnig sitja fundinn Guðrún Andrea Einarsdóttir fulltrúi starfsmanna, Arnar Eysteinsson fulltrúi foreldra, Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri.
Sigrún Hanna Sigurðardóttir ritar fundargerð.
Dagskrá:
1. Kosning ritara.
Sigrún Hanna Sigurðardóttir var kosin ritari fræðslunefndar.
2. Námskrá fyrir leikskóladeild Auðarskóla.
Námskrá fyrir leikskóladeild Auðarskóla samþykkt.
3. Sjálfsmatsskýrsla Auðarskóla.
Sjálfsmatsskýrsla Auðarskóla var tekin til umræðu. Rætt var um mikilvægi sjálfsmatsins. Farið var yfir niðurstöður um líðan barna og starfsfólks í skólanum, vinna við úrbætur hefur þegar farið af stað í skólanum, von er á umbótaskýrslu á heimasíðu Auðarskóla innan skamms. Jákvætt hvað leikskólinn kemur vel út úr matinu.
4. Tilraunaverkefni um ytra mat á Auðarskóla.
Vinna komin af stað. Sveitafélagið hefur valið Bryndísi Ástu Böðvarsdóttur sem fulltrúa sveitarfélagsins í þessu verkefni. Þrír matsþættir verða þungamiðja í matinu: kennsla og nám, stjórnun skóla og vinnubrögð við innramat. Gert er ráð fyrir að skóli, skólaráð eða sveitafélag geti komið fram með óskir um að matsteymi skoði sérstaklega tiltekinn þátt í starfi viðkomandi skóla. Fræðslunefnd leggur til að fjórði þátturinn verði foreldrasamstarf.
5. Starfsáætlun Auðarskóla.
Eyjólfur lagði fram starfsáætlun Auðarskóla til kynningar.
6. Önnur mál.
Forföll starfsmanna Auðarskóla var til umræðu og hefur fræðslunefnd áhyggjur af hversu mikið er um forföll.
Komnir eru 4 fulltrúar í ungmennaráð, Elín Margrét Böðvarsdóttir, Sigurður Bjarni Gilbertsson, Sæþór Sindri Kristinsson og Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir. Stjórn nemendafélags Auðarskóla á eftir að kjósa sér sinn fulltrúa en það verður gert á næstu dögum.
Formanni nefndarinnar hefur borist upplýsingar um ýmis mats- og greiningatæki, t.d. Skólapúlsinn, Skólavogina og Logos.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 17:50
Elísabet Svansdóttir
Eyjólfur Sturlaugsson
Jóhanna H. Sigurðardóttir
Arnar Eysteinsson
Ragnheiður Pálsdóttir
Guðrún Andrea Einarsdóttir
Ásdís Kr. Melsted
Sigrún Hanna Sigurðardóttir
Til baka