Sveitarstjórn, fundur nr. 81
Dags. 20.12.2011
Hljóðupptaka fundarins
Sveitarstjórn Dalabyggðar fundargerð 81. fundar
Árið 2011, þriðjudaginn 20. desember kl. 17:00 kom sveitarstjórn Dalabyggðar saman til fundar í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Fundinn sátu: Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti, Halla Steinólfsdóttir, Guðrún Ingþórsdóttir, Jóhannes Hauksson, Eyþór Jón Gíslason, Þorkell Cýrusson, Þorsteinn Jónsson og Sveinn Pálsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Fundargerð var færð á tölvu.
Oddviti setur fund og býður fundarmenn velkomna.
Gengið var til dagskrár.
Dagskrá:
1. Skýrsla sveitarstjóra.
Frá síðasta fundi hef ég unnið að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 sem er til afgreiðslu á þessum fundi og þriggja ára áætlun 2013-2015 sem er til fyrri umræðu. Ég hef setið stjórnarfund hjá Ungmenna- og tómstundabúðum, kynningarfund um evrópsk byggðamál, fund í vinnuhópi um almenningssamgöngur á Vesturlandi og kynningarfund um jarðvang á Snæfellsnesi. Einnig fund með framkvæmdaráði Heilbrigðisstofnunnar Vesturlands, stjórnarfund Sorpurðunar Vesturlands og fund í starfshópi um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Þrír byggðarráðsfundir hafa verið haldnir frá síðasta sveitarstjórnarfundi þar sem fjárhagsáætlanir voru meginumfjöllunarefni.
Fundargerðir til staðfestingar:
2. Fundargerð 97. fundar byggðarráðs frá 22.11.2011.
Fundargerðin samþykkt.
3. Fundargerð 98. fundar byggðarráðs frá 7.12.2011.
Fundargerðin samþykkt.
4. Fundargerð 99. fundar byggðarráðs frá 13.12.2011.
Fundargerðin samþykkt með 6 atkvæðum, einn sat hjá.
5. Fundargerð 43. fundar fræðslunefndar frá 8.12.2011.
Liður 5.
Lagt er til að boðað verði til skólaþings í sveitarfélaginu í byrjun næsta árs.
Sveitarstjórn samþykkir að boðað verði til skólaþings á fyrri hluta næsta árs.
Liður 7.
Boð um að taka þátt í tilraunaverkefni um ytra mat á grunnskólum.
Sveitastjórn samþykkir að taka þátt í verkefninu.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt í einu hljóði.
6. Fundargerð 33. fundar Menningar- og ferðamálanefndar frá 25.10.2011.
Fundargerðin samþykkt.
7. Fundargerð 34. fundar Menningar- og ferðamálanefndar frá 11.11.2011.
Nefndin leggur til að veitt verði 1,5 millj. kr. í gerð og útgáfu upplýsingabæklings.
Í fjárhagsáætlun Dalabyggðar, lið 1361 er gert ráð fyrir 1,2 milljón kr. til kynningarstarfsemi enda verði haft samráð við Markaðsstofu Vesturlands.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt.
Fundargerðir til kynningar:
8. Fundargerð 80. fundar sveitarstjórnar frá 18.11.2011.
9. Fundargerð 121. fundar Breiðafjarðarnefndar frá 17.8.2011. - 1112015
10. Fundargerð 122. fundar Breiðafjarðarnefndar frá 2.11.2011. - 1112016
Mál til umfjöllunar / afgreiðslu:
11. Bréf Hjalta Viðarssonar dags. 01.12.2011. - 1112014
Með bréfinu óskar Hjalti eftir lausn frá störfum í sveitarstjórn Dalabyggðar og í nefndum á vegum sveitarfélagsins frá 1. desember 2011 vegna brottflutnings úr sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn samþykkir að veita Hjalta lausn frá störfum og þakkar honum samstarfið.
Fyrsti varamaður, Daði Einarsson tekur sæti Hjalta frá og með næsta fundi.
12. Bréf Félags leikskólakennara dags. 30.11.2011. - 1112013
Sveitarstjóra falið að svara bréfinu.
13. Gjaldskrár.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti og holræsagjaldi til elli- og örorkulífeyrisþega í Dalabyggð.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarskóla.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð.
Samþykkt samhljóða.
14. Fjárhagsáætlun 2012, síðari umræða.
Til máls tók: Sveinn.
Fjárhagsáætlun 2012 var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar 15. nóvember sl.
Í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir að álagningarhlutföll útsvars, fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt frá fyrra ári. Sama gildir um álagningarhlutföll í gjaldskrám fyrir holræsagjald og vatnsgjald. Nokkur hækkun varð á fasteignamati íbúðarhúsnæðis, sérstaklega í þéttbýli sem leiðir til þess að tekjur hækka nokkuð. Ekki er gert ráð fyrir að útsvarstekjur hækki frá árinu 2011.
Gert er ráð fyrir að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækki nokkuð, fyrst og fremst vegna aukins skólaaksturs.
Þjónustugjöld hækka almennt um 5,3% eða sem nemur hækkun neysluverðsvísitölu.
Tekjumörk vegna afslátta elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti hækka um 11 – 20% sem ætti að leiða til þess að fleiri njóti þessara afslátta.
Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður Auðarskóla hækki ekki frá árinu 2011 þrátt fyrir launahækkanir og verði um 14 millj. kr. lægri en á árinu 2010 miðað við verðlag hvors árs.
Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður skrifstofu verði um 5% lægri en á árinu 2011 og verður þá um 5 millj. kr. lægri en á árinu 2010 á verðlagi hvors árs.
Gert er ráð fyrir umtalsverðum aðhaldsaðgerðum á Silfurtúni og hafa þær að hluta þegar komið til framkvæmda. Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir að halli á rekstri Silfurtúns verði um 9 millj. kr. á árinu 2012. Rekstrarhalli ársins 2011 verður um 18 millj. kr. og rekstrarhalli árins 2010 var um 28 millj. kr. Uppsafnaður rekstrarhalli síðustu ára er yfir 100 millj. kr. og er þessi upphæð færð sem skuld Silfurtúns við Dalabyggð í bókhaldi sveitarfélagsins. Velferðarráðuneytið hefur ekki orðið við margítrekuðum kröfum Dalabyggðar um fjölgun hjúkrunar- og dagvistarrýma til samræmis við núverandi rekstur.
Gert er ráð fyrir að rekstur A-hluta með eignasjóði verði jákvæður um 0,8 millj. kr. á árinu 2012 en halli á rekstri samstæðu verði um 7 millj. kr.
Veltufé frá rekstri verður um 31 millj. kr. og afborganir langtímalána um 22 millj. kr. Gert er ráð fyrir nýjum lántökum sem nemur 45 millj. kr. til framkvæmda. Helstu framkvæmdir verða endurbætur á stjórnsýsluhúsi, Dalabúð og húsnæði Auðarskóla. Einnig er gert ráð fyrir endurbótum á fjárréttum, tilgátuhúsi á Eiríksstöðum og sundlaug að Laugum svo eitthvað sé nefnt. Gert er ráð fyrir framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna Auðarskóla og framlagi mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna tilgátuhúss að Eiríksstöðum.
Gert er ráð fyrir að skuldir og skuldbindingar Dalabyggðar í árslok 2012 nemi um 474 millj. kr. eða um 76% af tekjum.
Sveitarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 í einu hljóði.
15. Fjárhagsáætlun 2013-2015, fyrri umræða
Til máls tók: Sveinn
Gert er ráð fyrir svipuðum rekstri og á árinu 2012. Gert er ráð fyrir að velferðarráðuneytið verði við sanngjörnum kröfum Dalabyggðar um fjölgun hjúkrunar- og dagvistarrýma til samræmis við núverandi rekstur og að rekstrarniðurstaða Silfurtúns og þar með Dalabyggðar verði jákvæð á árunum 2013-2015.
Fjárhagsáætlun 2013-2015 vísað til síðari umræðu.
Efni til kynningar:
16. Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 24.11.2011 -1112007
17. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum. - 1112004
18. Vestfjarðavegur um Hvolsdal – bréf Vegagerðarinnar dags 02.12.2011. - 1111027
19. Bréf félags Tónlistarskólakennara dags. 06.12.2011 - 1112012
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Næsti fundur sveitarstjórnar er áætlaður þriðjudaginn 17. janúar 2012.
Oddviti óskar sveitarstjórnarmönnum og starfsfólki gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:52.
Ingveldur Guðmundsdóttir oddviti
Halla Steinólfsdóttir varaoddviti
Þorkell Cýrusson
Guðrún Ingþórsdóttir
Eyþór Jón Gíslason
Jóhannes Haukur Hauksson
Þorsteinn Jónsson
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Til baka