Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Umhverfis-og skipulagsnefnd, fundur nr. 31

Dags. 8.9.2010

Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar

31. fundur í umhverfisnefnd Dalabyggðar, var haldin í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal miðvikudaginn 08.sept. kl. 16°°

 

Mættir voru:
Hörður Hjartarson
Sæmundur Jóhannsson
Vilhjálmur H. Guðlaugsson
Bogi Kristinsson Magnusen

 

Fundarefni:


1. Umsókn um byggingarleyfi viðbyggingu við  núverandi bílskur á Gunnarsbraut 7, Búðardal, Dalabyggð.
Umsækjandi er Jóhann Pálmason, Gunnarsbraut 7, Búðardal.
Fyrir liggja byggingarnefndarteikningar með umsókninni.

Umsóknin er samþykkt

 

2. Umsókn um byggingarleyfi fyrir að klæða íbúðarhúsið á Klifmýri, Skarðsströnd, með Canexel klæðningu og einangra með 50 mm einangrun.
Umsækjandi er Hermann Karlsson, Klifmýri, Dalabyggð.

Umsóknin er samþykkt.

 

3. Umsókn um byggingarleyfi 6m² geymsluhúsi á lóðinni Sælingsdalsland, landnr: 137741.
Umsækjendur eru Kristinn Sigurjón Antonsson  kt: 260236-4319
og Elínborg Ósk Elísdóttir kt: 100435-3309.

Umsóknin er samþykkt.

 

4. Umsókn um byggingarleyfi fyrir að breyta turni kirkjunnar á Kvennabrekku í þá mynd sem hann var teiknaður í upphafi.
Umsækjandi f.h sóknarnefndar er Guðmundur Pálmason, Kvennabrekku.
Fyrir liggur umsögn með fyrirvara frá Húsfriðunarnefnd ríkisins.

Umsókin er samþykkt með fyrirvara um endanlegt samþykki Húsafriðunar-nefndar.

 

5. Umsókn um 8 x 16m strandblakvöll í  Búðardal sunnan við núverandi sparkvöll.                                                                                         Umsækjendur eru Ingibjörg Jóhannsdóttir, Helga D Rúnarsdóttir, Freyja Ólafsdóttir, Hjörtur V Jörundsson, Sigrún H Sigurðardóttir, Gísli Björn Rúnarsson og Sæmundur Jóhannsson.
Sæmundur Jóhannsson vék af fundi á afgreiðslu 5.liðar.

Umsóknin er samþykkt og byggingarfulltrúa falið að staðsetja völlinn.

 

6. Umsókn um byggingarleyfi fyrir 14.1m² gestahúsi á lóð Ósland nr 5, landnr. 201928.
Umsækjandi er Guðlaug Erla Gunnarsdóttir kt: 051165-4039 Sjávargata 33 Fyrir liggja byggingarnefndarteikningar með umsókninni.

Umsóknin er samþykkt.

 

7. Umsókn um byggingarleyfi fyrir 139m² vélaskemmu á Sauðafelli landnr: 200053 .

Umsækjandi f.h eiganda er Sigurður Á Haraldsson BFÍ, Vættarborgum 86, 112 Reykjavík.
Fyrir liggja byggingarnefndarteikningar með umsókninni.
Setja skal hurðaropnun á grunnmynd samkvæmt útlitisteikningu.

Umsóknin er samþykkt.

 

8. Umsókn um byggingarleyfi fyrir  61m² gestahúsi á Gautastöðum, Hörðudal.
Umsækjandi  f.h eiganda er Helgi Hjálmarsson arkitekt hjá Teiknistofunni, Óðinstorgi.
Fyrir liggja byggingarnefndarteikningar með umsókninni.

Umsóknin er samþykkt.

 

9. Umsókn um niðurrif á mannvirkjum á Kleifum 2, Gilsfirði landnr: 137864.
Umsækjandi er Stefán Jóhannesson, kt: 291237-4289, Blikahólum 4, Rkv.

Umsóknin er samþykkt.

 

10. Samningar um veiðar á ref.

Samningar við refaveiðimenn rann út 31.ágúst 2010.  Byggðaráð vísar samningum til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Hörður Hjartarson vék af fundi á afgreiðslu 10.liðar.

Nefndin gerir ekki athugasemd við samninginn og vill að haldið verði í sama samningsform þegar þeir verða endurnýjaðir.

 

Fundargerðin er rituð á tölvu og er tvær síður.

Fundi slitið kl 17:20

 

Hörður Hjartarson     (sign)
Vilhjálmur H Guðlaugsson  (sign)
Sæmundur Jóhannsson  (sign)
Bogi Kristinsson Magnusen   (sign)



Til baka