Byggðarráð, fundur nr. 77
Dags. 7.9.2010
Byggðarráð Dalabyggðar
Á fundinum var kynnt hugmynd að framtíðarskipulagi útisvæða umhverfis Byggðarráð Dalabyggðar.
77. fundur byggðarráðs Dalabyggðar, haldinn þriðjudaginn 7. september 2010, í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hófst kl. 17:00.
Mætt voru: Eyþór Jón Gíslason, Hjalti Viðarsson, Ingveldur Guðmundsdóttir og Sveinn Pálssons sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Fundargerðin var færð á tölvu.
Eftirfarandi tekið fyrir skv. dagskrá:
1. Fjármál Dalabyggðar.
Magnína Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, mætti á fundinn og gerði grein fyrir fjárhagsstöðu Dalabyggðar.
2. Bréf Sóknar- og kirkjugarðsnefndar Hjarðarhólskirkju dags. 19. ágúst 2010.
Sótt er um styrk til að lækka skuldir sóknarinnar en fram kemur í bréfinu að Jöfnunarsjóður kirkna er reiðubúinn til að tvöfalda hugsanlegt framlag Dalabyggðar.
Í ljósi þröngrar stöðu sveitarsjóðs leggur byggðaráð til að sveitarstjórn hafni erindinu.
3. Silfurtún, minnisblað forstöðumanns dags. 24. ágúst 2010.
Ingibjörg Kristjánsdóttir forstöðumaður vekur m.a. athygli á að bæta þurfi aðgengi að húsinu og að viðhaldi sé ábótavant sérstaklega utanhúss.
Umræðu um erindið er vísað til fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.
4. Félagsheimilið Árblik, bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 25. ágúst 2010.
Bréfinu fylgja niðurstöður úr örverurannsókn á neysluvatnssýni sem sýna að vatnið uppfyllir ekki gæðakröfur skv. reglugerð.
Byggðaráð samþykkir að láta skipta um safngeymi, kostnaður áætlaður kr. 500.000,-.
5. Skólamatur, tölvubréf Samkaupa dags. 19. ágúst 2010.
Tilkynnt er um 5,69% hækkun á skólamat í samræmi við breytingu á neysluvístölu.
Byggðarráð samþykkir að gjaldskrá mötuneytis Auðarskóla hækki í samræmi við hækkun Samkaupa frá 1. október nk. þannig að niðurgreiðsla sveitarfélagsins sé sú sama og áður.
6. Laugar – tjaldsvæði, leik- og íþróttasvæði.
Fyrir liggur fundargerð frá 29. júlí sl. þar sem sátu fulltrúar Dalabyggðar, UMFÍ og Hótel Eddu ásamt Guðmundi Hrafni Arngrímssyni landslagsarkitekt sem kynnti hugmyndir um skipulag útisvæða á Laugum.
fram til kynningar.
7. Fundargerð 19. fundar stjórnar Ungmenna- og tómstundabúða frá 27. ágúst 2010.
Á fundinum var kynnt hugmynd að framtíðarskipulagi útisvæða umhverfis byggingarnar, leiksvæða, útivistarsvæða og tjaldsvæðis og samþykkt að óska eftir að Dalabyggð taki hugmyndirnar til áframhaldandi vinnslu.
Einnig rætt um viðhaldsþörf mannvirkja þ.m.t. íbúðarhúsa.
Fram kom að endurskoða þurfi samstarfssamning milli Dalabyggðar, Dalagistingar og Ungmennabúða m.a. þar sem breytingar hafi orðið á opnun og umsjón íþróttamannvirkja frá því að samningurinn var gerður.
Á fundinum var upplýst að vandamál hafi skapast vegna ölvunar og óláta við Guðrúnarlaug og óskað eftir að Dalabyggð leiti lausnar á vandamálinu þannig að ekki valdi truflun á svæðinu.
Byggðarráð samþykkir að komið verði upp skilti við Guðrúnarlaug þar sem umgengnisreglur verði skýrar og leggur til að leitað verði leiða til að unnt sé að loka lauginni ef þurfa þykir. Samið verði um eftirlit með henni við endurskoðun samninga við Ungmennabúðir og hótel Eddu. Umræðum um viðhald verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
8. Bréf Skátafélagsins Stíganda dags. 31. ágúst 2010 varðandi þjónustusamning.
Óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarstjórnar með það að markmiði að koma á þjónustusamningi milli sveitarfélagsins og skátafélagsins.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að funda með fulltrúum skátafélagsins.
9. Strandblakvöllur í Búðardal.
Byggðarráð samþykkir að styrkja uppbyggingu strandblakvallar með 450.000 kr. framlagi.
Staðsetning vallarins er háð samþykki umhverfisnefndar.
10. Endurvinnslustöð – opnunartími, kynning.
Byggðarráð samþykkir að endurvinnslustöð verði opinn þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15-18 og laugardaga 11-14.
Fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir móttöku sorps á endurvinnslustöð samþykkt.
11. Fjallskilasamþykkt – bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis dags. 22. júní 2010.
Með bréfinu eru gerðar fáeinar athugasemdir við drög að fjallskilasamþykkt sem send voru ráðuneytinu til yfirferðar og staðfestingar 4. maí sl.
Byggðarráð felur Ingveldi að yfirfara samþykktina m.t.t. athugasemdanna.
12. Leifsbúð, tjaldsvæði - minnisblað Freyju Ólafsdóttur dags. 1. sept. 2010.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að yfirfara minnispunktana.
13. Fjallskil – tölvubréf frá bændum á Skógarströnd dags. 25. ágúst 2010.
Bréfið fer til umfjöllunar hjá viðkomandi fjallskilanefnd.
14. Skólamál – bréf skólastjóra Auðarskóla dags 2. september 2010.
Vegna fjölgunar skólabarna í Auðarskóla er óskað eftir aukningu kennslukvóta um 6 vikustundir og heimildar til að kaupa tvær tölvur í tölvuver. Kostnaður áætlaður 750.000 þar af kr. 450.000 á árinu 2010.
Byggðarráð samþykkir erindið en felur sveitarstjóra og skólastjóra að skoða málið nánar.
15. Önnur mál.
Sveitarstjóri víkur af fundi.
a. Stekkjarhvammur 7 - kauptilboð.
Borist hefur kauptilboð í eignina Stekkjarhvamm 7.
Byggðarráð leggur til að tilboðinu verði hafnað þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um að selja húsið.
Sveitarstjóri kemur inn á fundinn.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerðin upplesin og samþykkt í einu hljóði.
Fundi slitið kl. 21:40
_____________________________
Eyþór Jón Gíslason
_____________________________
Hjalti Viðarsson
_____________________________
Ingveldur Guðmundsdóttir
_____________________________
Sveinn Pálsson
Til baka