Félagsmálanefnd, fundur nr. 17
Dags. 7.9.2010
Fundargerð
17. fundur í félagsmálanefnd Dalabyggðar haldinn 7. september 2010
Mætt: Harpa Helgadóttir, Jóhanna Sigrún Árnadóttir, Þorkell Cyrusson, Þóra Stella Guðjónsdóttir og Guðrún Ingþórsdóttir.
Fundinn sátu einnig félagsráðgjafarnir Hjördís Hjartardóttir og Halldór Gunnarsson sem skrifaði fundargerð.
1. Hjördís setti fund og stýrði kjöri formanns og varaformanns.
Formaður kjörin Harpa Helgadóttir, varaformaður kjörin Jóhanna Sigrún Árnadóttir.
Nýkjörinn formaður tók við stjórn fundarins.
2. Tilnefning fulltrúa og varafulltrúa í Barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala.
Fulltrúi kosin Þóra Stella Guðjónsdóttir og til vara kosinn Þorkell Cyrusson.
3. Umsókn um leyfi til dagvistunar á einkaheimili.
Hönnu Sígríði Stefánsdóttur veitt endurnýjun bráðabirgðaleyfis til sex mánaða.
4. Flutningur á þjónustu fatlaðra til sveitarfélaga.
Hjördís skýrði frá stöðu mála í yfirflutningnum og lýsti því fyrirkomulagi á þremur þjónustusvæðum á Vesturlandi sem allt stefnir í. Þær hugmyndir fela í sér að Borgarbyggð taki að sér þjónustu við fatlaða í Dölum.
Starfsmönnum falið að kanna umfang þjónustu Svæðisskrifsofu Vesturlands í Dalabyggð.
5. Jafnréttismál – landsfundur jafnréttisnefnda.
Minnt á árlegan fund sem verður um næstu helgi á Akureyri. Enginn sér sér fært að fara í ár.
6. Önnur mál.
Starfsmenn benda á að ekkert sé um félagsþjónustuna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Þeim falið að hafa samband við umsjónarmann heimasíðu vegna þess.
Fundi slitið kl. 17:15
Til baka