Sveitarstjórn, fundur nr. 63
Dags. 24.8.2010
Hljóðupptaka fundarins
Sveitarstjórn Dalabyggðar fundargerð 63. fundur
Árið 2010, þriðjudaginn 24. ágúst kl. 16:00 kom sveitarstjórn Dalabyggðar saman til fundar í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Fundinn sátu: Halla Steinólfsdóttir oddviti, Ingveldur Guðmundsdóttir, Eyþór Jón Gíslason, Hjalti Viðarsson, Guðrún Ingþórsdóttir, Þorkell Cýrusson í forföllum Jóhannesar Haukssonar og Daði Einarsson í forföllum Guðrúnar Jóhannsdóttur, Sveinn Pálsson sveitastjóri og Ingibjörg Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð.
Fundargerð var færð á tölvu.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna, einnig bauð hann nýjan sveitarstjóra Svein Pálsson velkominn.
Gengið var til dagskrár.
Dagskrá:
1. Skýrsla formanns byggðarráðs.
Ég vil bjóða Svein Pálsson nýráðinn sveitarstjóra Dalabyggðar velkominn til starfa, en hann hóf störf hjá sveitarfélaginu í gær. Fyrir fundinum liggur tillaga byggðarráðs um að ráðningarsamningur sem gerður hefur verið við Svein verði samþykktur og verður samningurinn lagður fram á fundinum. Meðan á ráðningarferlinu stóð voru sveitarstjórnarmenn í tölvu- og símasamskiptum um framgang mála og var samstaða um ráðninguna.
Framkvæmdir við nýtt gámasvæði við Vesturbraut eru á lokametrunum. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum 12. júlí að unnið yrði aukaverk samhliða áður umsömdum framkvæmdum, en þannig er lokið við frágang á plönum og aðkeyrslu og þannig lokið við lóðina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið um miðjan september og verður íbúum sveitarfélagsins sent kynningarefni um breytt fyrirkomulag áður en rekstur móttökustöðvar sorps á gámasvæðinu hefst.
Aðrar stærri framkvæmdir sumarsins voru m.a. vinna við frágang leikskólalóðar, bygging fjárréttar í Saurbæ og hafnar eru framkvæmdir við frágang á gangstéttum við Stekkjarhvamm. Í byrjun sumars var unnið að endurbótum á efri hæð Leifssafns og listasýning sett upp á neðri hæð hússins. Hins vegar tókst ekki að opna Skáldastofu á efri hæð safnsins eins og til stóð, þar sem vinnu við gólf var ekki lokið þegar rekstur veitingastaðar var kominn í fullan gang.
Undirrituð sendi umsókn til Lánasjóðs sveitarfélaga og óskði eftir 20 millj. kr. láni hjá sjóðnum, en skv. fjárhagsáætlun ársins 2010 var gert ráð fyrir því fjármagni til að fjármagna hluta framkvæmda ársins. Það er ánægjulegt að segja frá því að í svari Lánasjóðsins kom fram að skuldastaða Dalabyggðar væri það góð að umsóknin þyrfti ekki að fara fyrir stjórn sjóðsins og lánasamningur ætti að berast á næstu dögum.
Í lok júlí fór ég ásamt Höllu og Halli byggingarfulltrúa á fund með fulltrúum frá; Ungmenna- og tómstundabúðunum á Laugum, Ungmennafélagi Íslands og Hótel Eddu. Þar kynnti Guðmundur Hrafn Arngrímsson, landslagsarkitekt, hugmyndir að framtíðarskipulagi á Laugum varðandi tjaldstæði, leiksvæði o.fl., en Ungmennabúðirnar og UMFÍ hafa lýst yfir áhuga á að koma að uppbyggingu þrautabrautar eða leiksvæðis á Laugum.
Guðmundur Hrafn hefur einnig unnið hugmyndir að skipulagi á stækkun tjaldstæða í Búðardal og notkun á svæðinu þar í kring. Ljóst er að ferðamönnum sem kjósa að heimsækja Dalina fer fjölgandi og þörf er á úrbótum varðandi tjaldstæði.
Fráfarandi sveitarstjóri hefur ásamt Oddi Jónssyni hjá KPMG unnið að tillögum á breyttu fyrirkomulagi á rekstri Dalagistingar og verða tillögurnar kynntar á stjórnarfundi í félaginu á næstunni.
Þann 10. júlí var haldið upp á 10 ára afmæli Eiríksstaða og samhliða því var haldin bæjarhátíð í Búðardal. 8. ágúst var haldin Ólafsdalshátíð og þess var minnst að 130 ár eru liðin frá stofnun fyrsta búnaðarskóla Íslands sem var staðsettur í Ólafsdal. Síðast liðna helgi var svokallað Dalabríarí á Laugum í Sælingsdal, en það var skemmtileg samblanda af tónlist og mat úr héraði. Allir þessir atburðir voru bæði vel heppnaðir og vel sóttir og í alla staði til sóma fyrir Dalamenn.
Framundan er vinna við endurskoðun fjárhagsáætlunar ársins 2010 og í kjölfarið verður unnið að undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Samhliða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar þarf sveitarstjórn að taka ákvörðun um hvort sveitarfélagið sjái sér fært að gera eitthvað til að hreyfa við húsnæðismálum í Búðardal sem segja má að hafi verið í járnum undanfarin misseri.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki á skrifstofu Dalabyggðar fyrir samstarf og þolinmæði, en meira hefur mætt á þeim undanfarna tvo mánuði en þeirra daglegu störf meðan ekki hefur verið starfandi sveitarstjóri hjá sveitarfélaginu.
2. Fundargerðir sveitarstjórnar frá 15. júní og 28. júlí 2010.
Lagðar fram til kynningar.
3. Fundargerðir byggðarráðs frá 15. júní, 12. júlí og 17. ágúst 2010.
Til máls tók: Eyþór Jón Gíslason,
a. Fundargerð frá 15. júní 2010
Samþykkt í einu hljóði.
b. Fundargerð frá 12. júlí 2010
Samþykkt í einu hljóði.
c. Fundargerð frá 17. ágúst 2010
Gert var fundarhlé í 15 mín.
Sveinn Pálsson víkur af fundi
a. Liður 3. Ráðning sveitarstjóra.
Samþykkt í einu hljóði.
Sveinn Pálsson kom til fundar aftur.
b. Liður 5. Bréf frá Stéttarfélagi Vesturlands dags. 9. ágúst
2010, vegna makaskipta á eignarhlutum innan húseignarinnar
að Miðbraut 11, Búðardal.
Samþykkt, 6 greiddu atkvæði og einn sat hjá.
c. Liður 6. Tölvupóstur frá Vegagerðinni dags. 21. júlí 2010, er
varðar girðingamál á Skógarströnd.
Tölvupósturinn tengist erindi frá Landgræðslufélagi Skógarstrandar um
að sveitarfélagið lýsi yfir lausagöngubanni búfjár á Skógarströnd
skógræktargirðingar.
Tillaga:
Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn hafni því að lýsa yfir
lausagöngubanni búfjár á Skógarströnd.
Samþykkt í einu hljóði.
d. Liður 10b. Lagfæring á bílaplani við Tjarnarlund.
Samþykkt í einu hljóði.
Fundargerð að öðru leiti samþykkt í einu hljóði.
4. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 21. júní 2010.
Samþykkt í einu hljóði
5. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. júlí 2010
Til máls tók: Eyþór Jón Gíslason.
Samþykkt í einu hljóði
6. Fundargerð fræðslunefndar frá 19. ágúst 2010.
Tillaga fræðslunefndar um að vinna bækling um tómstundir í Dalabyggð og fela Svölu Svavarsdóttur að sjá um að safna efni í bæklinginn.
Samþykkt í einu hljóði.
Fundargerðin að öðru leiti samþykkt í einu hljóði.
7. Fundargerð aðalfundar veiðifélags Laxár í Hvammssveit frá 17. apríl 2010.
Lögð fram til kynningar.
8. Fundargerð skólanefndar Fjölbrautarskóla Vesturlands frá 15. júní 2010.
Lögð fram til kynningar.
9. Fundargerð aðalfundar heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 23. júní 2010.
Lögð fram til kynningar.
10. Fundarboð á XXIV. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
11. Bréf frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 13. júlí, er varðar námskeið á vegum sambandsins.
Lagt fram til kynningar.
12. Kosning fulltrúa á aðalfunda Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Til máls tók: Eyþór Jón Gíslason
Gert var fundarhlé í 10 mín.
Tillaga um aðalfulltrúa:
Hjalti Viðarsson, Eyþór Jón Gíslason og Halla Steinólfsdóttir.
Tillaga um varafulltrúa:
Þorkell Cýrusson, Ingveldur Guðmundsdóttir og Guðrún Ingþórsdóttir.
Samþykkt í einu hljóði.
13. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Tillaga um aðalfulltrúa:
Guðrún Jóhannsdóttir
Tillaga um varafulltrúa:
Jóhannes Haukur Hauksson.
Samþykkt í einu hljóði með fyrirvara um þeirra samþykki.
Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar er áætlaður 14. september n.k.
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:35.
_____________________________
Halla Steinólfsdóttir, oddviti
______________________________
Daði Einarsson
______________________________
Ingveldur Guðmunsdóttir
______________________________
Guðrún Ingþórsdóttir
_______________________________
Þorkell Cýrusson
_______________________________
Eyþór Jón Gíslason
_______________________________
Hjalti Viðarsson
_______________________________
Ingibjörg Jóhannsdóttir, ritari
________________________________
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri
Til baka