Fræðslunefnd, fundur nr. 34
Dags. 19.8.2010
34. fundur fræðslunefndar Dalabygðar, haldinn í stjórnsýsluhúsinu 19. ágúst 2010 kl: 17:00.
Mættir: Ásdís Kr. Melsted, Guðrún Kristinsdóttir, Hjalti Viðarsson, Jóhanna H. Sigurðardóttir, Ragnheiður Pálsdóttir og Þorgrímur Einar Guðbjartsson.
Jóhanna er fyrsti varamaður og var boðuð til fundar til að kynnast nefndinni.
Einnig mættu til fundarins skólastjóri, Eyjólfur Sturlaugsson, Kristján Elvar Meldal, fulltrúi kennara og Arnar Eysteinsson, fulltrúi foreldrafélags.
Þorgrímur bauð fundarmenn velkomna á fyrsta fund nýrrar fræðslunefndar. Hann lagði til að dagskrá fundarins yrði breytt og liðum 1 og 2 yrði víxlað. Nefndin myndi byrja á því að skipta með sér verkum og
færi svo yfir erindisbréfið.
Nefndarmenn kynna sig þar sem þetta er fyrsti fundur nýrrar fræðslunefndar.
Dagskrá:
1. Nefndin skipti með sér verkum.
Þorgrímur E. Guðbjartsson var kosinn formaður, Ásdís K. Melsted var kosinn varaformaður, Guðrún Kristinsdóttir var kosinn ritari og færði hún fundargerð á tölvu.
2. Farið yfir erindisbréf nefndarinnar.
Þorgrímur lagði til að tveir nefndarmenn myndu fara yfir erindisbréfið og leggja fram tillögur um breytingar ef þarf. Aðrir nefndarmenn geta komið athugasemdum til þeirra tveggja. Breytingar verði lagðar fram fyrir næsta fund. Þorgrímur lagði til að Hjalti Viðarsson og Ragnheiður Pálsdóttir sjái um framkvæmdina og var það samþykkt einróma.
Eyjólfur Sturlaugsson og Kristján Meldal komu á fundinn klukkan 17:15. Kristján kom sem fulltrúi kennara og Eyjólfur sem skólastjóri Auðarskóla.
3. Málefni grunnskóladeildar Auðarskóla.
Eyjólfur ræðir um þá sýn sem starfsfólk skólans hefur að leiðarljósi við störf sín. Einkunnarorð Auðarskóla í hans starfi eru: Ábyrgð – Ánægja – Árangur.
Nemendur verða 95 í haust. Farið yfir starfsmannabreytingar, fjórir nýjir starfsmenn taka til starfa á nýju skólaári; Ólafur Rúnarsson nýr tónlistarkennari, Soffía Magnúsdóttir, skólaliði, María Ólafsdóttir í leikskóladeild, Erla Björk Jónsdóttir leiðbeinandi í Tjarnarlundi.
Svavar Sigurðsson, Sigrún Sigurðardóttir, Hildur Ýr Haraldsdóttir og Halla Steinólfsdóttir láta af störfum og þakkar fræðslunefnd þeim fyrir góð störf.
Fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi ræddar.
4. Málefni tónlistardeildar Auðarskóla.
Ekki er vitað hve margir nemendur verða við tónlistardeild skólans, en það kemur í ljós í fyrstu kennsluvikunni.
5. Málefni leikskóladeildar Auðarskóla.
Börnin eru 36 núna en verða 35 í vetur. Leikskólinn er gerður fyrir 35 börn. Það næst að hreinsa biðlista en um jól verða líklega komin fjögur börn á biðlistann. Börn eru tekin inn um 18 mánaða aldur. Það er nú næstum lokið við að vinna við leikskólalóðina, aðeins er eftir örlítill frágangur.
Auðarskóli er að stofna til vinasamstarfs við leikskólann Skýjaborg- og Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.
Eyjólfur og Kristján fara af fundi klukkan 18:11 og er þeim þakkað fyrir fundarsetuna.
6. Tómstundamál í Dalabyggð.
a) Fræðslunefnd fer með æskulýðs- og íþróttamál. Í fyrra var unninn tómstundabæklingur sem var dreift í sveitarfélaginu. Fundarmenn vilja sjá að þetta verkefni haldi áfram og lagt er til við byggðarráð að gert verði ráð fyrir fjármagni til þess.
Formaður leggur það til við Fræðslunefnd að Svala Svavarsdóttir sjái um að safna efni í bæklinginn. Tillagan var samþykkt.
b) Unnið hefur verið að stefnumótun í æskulýðsmálum og er þeirri vinnu nánast lokið.
Formaður leggur til að fyrrum fræðslunefnd klári þá vinnu sem eftir er og skili til nýrrar fræðslunefndar. Umræður urðu um tilllöguna og hún samþykkt. Skal þeirri vinnu vera lokið fyrir 1. október 2010.
7. Önnur mál.
Tímasetning funda fræðslunefndar rædd. Samþykkt að fundir fræðslunefndar verði haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði klukkan 16.
Fundargerð lesin upp og formaður slítur fundi klukkan 19:12
Ásdís Kr. Melsted Arnar Eysteinsson
Guðrún Kristinsdóttir Eyjólfur Sturlaugsson
Hjalti Viðarsson Kristján Elvar Meldal
Jóhanna H. Sigurðardóttir Ragnheiður Pálsdóttir
Þorgrímur Einar Guðbjartsson
Til baka