Sveitarfélagið Dalabyggð

Skrifstofur Dalabyggðar eru að Miðbraut 11 í Búðardal.
Opnunartími er 10-14 alla virka daga.
Símatími er 9-13 alla virka daga
Sveitarstjórn
| Ingveldur Guðmundsdóttir, oddviti |
| Halla Sigríður Steinólfsdóttir, varaoddviti |
| Eyþór Jón Gíslason, formaður byggðaráðs |
| Guðrún Jóhannsdóttir |
| Guðrún Þóra Ingþórsdóttir |
| Daði Einarsson |
| Jóhannes Haukur Hauksson |
Sveitarstjóri er Sveinn Pálsson.
Íbúafjöldi
Skráðir voru 686 íbúar þann 1. janúar 2012. Karlar voru 360 og konur 324. Í töflunni hér að neðan má sjá íbúafjölda 1. janúar á svæðinu síðastliðin 10 ár.
|
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
2008 |
2009 |
2010 |
2011 |
2012 |
|
Karlar |
393 |
387 |
379 |
381 |
358 |
375 |
375 |
364 |
360 |
362 |
|
Konur |
363 |
351 |
332 |
336 |
323 |
334 |
339 |
330 |
324 |
324 |
|
Alls |
756 |
738 |
711 |
717 |
681 |
709 |
714 |
694 |
684 |
686 |
Upplýsingar um íbúafjölda má finna á heimasíðu Hagstofu Íslands.
Saga sveitarfélaga í Dalabyggð
Sveitarfélagið nær frá botni Álftafjarðar að botni Gilsfjarðar.
Dalabyggð varð til við sameiningu 6 sveitarfélaga 11. júní 1994 og síðan hafa tvö sveitarfélög bæst við.
Flest voru sveitarfélögin á svæðinu 10;
Skógarstrandarhreppur sameinaðist Dalabyggð 1. janúar 1998.
Hörðudalshreppur og Miðdalahreppur sameinuðust 1. janúar 1992 undir nafninu Suðurdalahreppur, sem síðan varð hluti af Dalabyggð 1994 ásamt Haukadalshreppi, Laxárdalshreppi, Hvammshreppi, Fellsstrandarhreppi og Skarðshreppi.
Klofningshreppur varð til 1918 við klofning Skarðsstrandarhrepps í Skarðshrepp og Klofningshrepp. Síðan klofnaði Klofningshreppur um Klofning 1. september 1986 milli Fellsstrandarhrepps og Skarðshrepps.
Saurbæjarhreppur sameinaðist Dalabyggð 10. júní 2006.