Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fundargerdir

Spurningin

Hvaða bollur finnst þér bestar?

7  6. janúar 2012  8

föstudaginn 6. janúar 2012 frá kl. 21:00 til 23:00

Gott fólk

á Hólmavík
Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Flestir í leikarahópnum eru á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir á Hólmavík. Í leikritinu segir frá hugmyndaríkum strák sem er aleinn heima um kvöld með bangsa sér til halds og trausts, þegar pabbi skreppur að sækja mömmu. Ótal furðuskepnur koma í heimsókn, meðal annars hungurvofa og hrekkjusvín, hræðslupúki og letihaugur, þannig að stráksi og bangsi hafa í nógu að snúast. Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið. Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20:00. Aðrar sýningar eru 30. desember, 4. janúar og 6. janúar, alltaf kl. 20:00.