Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fundargerdir

Spurningin

Hvaða bollur finnst þér bestar?

7  4. febrúar 2012  8

laugardaginn 4. febrúar 2012 frá kl. 10:30 til 13:30

Íþróttir og sund

á Laugum í Sælingsdal
Í sex laugardaga í janúar og febrúar verður íþróttaskóli, frjálsíþróttaæfingar og opin sundlaug á Laugum. Íþróttaskólinn er fyrir 2-6 ára krakka og verður kl. 10:30-11:30. Þar fer fram fjölbreytt og áhugaverð dagskrá. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að taka þátt í tímunum og vera börnunum til aðstoðar t.d. í áhaldahringjum og við klifur. Frjálsíþróttaæfingar verða fyrir börn á grunnskólaaldri á vegum UDN kl. 11:30-12:30. Þar sem slíkar æfingar hafa ekki verið í boði yfir vetrartímann er ætlunin að byrja á að auglýsa sex skipti og sjá svo til með framhaldið eftir því hvernig þátttakan verður. Sælingsdalslaug verður síðan opin kl. 10:30-13:30 í tengslum við íþróttaskólann og frjálsíþróttaæfingarnar. Umræddir laugardagar eru 7. janúar, 14. janúar, 28. janúar, 4. febrúar, 11. febrúar og 25. febrúar.

laugardaginn 4. febrúar 2012 frá kl. 11:30 til 22:00

Boxnámskeið

í æfingasal Ólafs Páa
Boxnámskeið með Gunnari fjórföldum Íslandsmeistara í hnefaleikum verður helgina 3.-5. febrúar í æfingasal Ólafs Páa. Æft verður tveimur hópum 13-18 ára (verð 3.500 kr) og 18 ára og eldri (verð 4.500 kr). Upplýsingar og skráning er hjá Stjána í síma 771 6454 og Baldri í síma 864 8684. Á föstudag er tímar fyrir 13-18 ár kl. 17 og 18 ár og eldri kl.19:30. Á laugardag verða 13-18 ára kl. 11:30 og 19:30, en eldri hóðpurinn kl. 13:30 og 17:00. Á sunnudag eru 13-18 ár kl. 11.30 og eldri hópurinn kl. 13:30.

laugardaginn 4. febrúar 2012 frá kl. 20:30 til 00:00

Þorrablót Suðurdala

í Árbliki
Þorrablót Suðurdala verður haldið í Árbliki laugardaginn 4. febrúar. Húsið opnar kl. 20 og borðhald hefst kl. 20:30. Höfðakaffi sér um matinn, Suðurdalamenn um skemmtiatriðin og hljómsveitin "Den gammle Dansk" um dansleikinn. Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 31. janúar. Athugið að panta þarf miða á dansleikinn. Almennt miðaverð er 5.500 kr, en fyrir eldri borgara og öryrkja 4.500 kr. Miði eingöngu á dansleik kostar 3.500 kr. Aldurstakmark er 16 ára. Nánari upplýsingar í frétt á Dalavefnum.
Sjá vefslóð: http://www.dalir.is/frettir/nr/124688/