Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fundargerdir

Spurningin

Hvaða bollur finnst þér bestar?

7  21. janúar 2012  8

laugardaginn 21. janúar 2012

Þorrablót Laxdæla

í Dalabúð
Þorrablót Laxdæla verður í Dalabúð laugardaginn 21. janúar. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Freyja Ólafsdóttir sér um matinn. Hljómsveitin Síðasti séns leikur fyrir dansi. Almennt miðaverð er 6.000 kr, en fyrir ellilífeyrisþega 4.500 kr. Miðaverð á dansleikinn eftir borðhald og skemmtiatriði er 2.500 kr. Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 18. janúar. Jónas 893 3516, Begga 891 6778, Ásdís 865 3382 eða Þórey 434 1614. Miðapantanir óskast sóttar í Dalabúð föstudaginn 20. janúar kl. 16-19. Athugið 16 ára aldurstakmark í fylgd forráðamanns !

laugardaginn 21. janúar 2012 frá kl. 20:30 til 00:00

Þorrablót Reykhólasveitar

í íþróttahúsinu Reykhólum
Þorrablót Reykhólasveitar verður laugardaginn 21. janúar. Húsið verður opnað kl. 19:30 en borðhald hefst kl. 20:30. Skógarpúkarnir leika fyrir dansi. Miðaverð í forsölu er 5.200 kr, eftir forsölu 5.800 kr og eingöngu á dansleik 2.500 kr. Aldurstakmark á blótinu er 16 ár.
Sjá vefslóð: http://www.reykholar.is/frettir/Thorrablotid_2012_Allar_naudsynlegar_upplysingar/