Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Setur þú niður kartöflur?

7  14. janúar 2012  8

laugardaginn 14. janúar 2012 frá kl. 10:30 til 13:30

Íþróttir og sund

á Laugum í Sælingsdal
Í sex laugardaga í janúar og febrúar verður íþróttaskóli, frjálsíþróttaæfingar og opin sundlaug á Laugum. Íþróttaskólinn er fyrir 2-6 ára krakka og verður kl. 10:30-11:30. Þar fer fram fjölbreytt og áhugaverð dagskrá. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að taka þátt í tímunum og vera börnunum til aðstoðar t.d. í áhaldahringjum og við klifur. Frjálsíþróttaæfingar verða fyrir börn á grunnskólaaldri á vegum UDN kl. 11:30-12:30. Þar sem slíkar æfingar hafa ekki verið í boði yfir vetrartímann er ætlunin að byrja á að auglýsa sex skipti og sjá svo til með framhaldið eftir því hvernig þátttakan verður. Sælingsdalslaug verður síðan opin kl. 10:30-13:30 í tengslum við íþróttaskólann og frjálsíþróttaæfingarnar. Umræddir laugardagar eru 7. janúar, 14. janúar, 28. janúar, 4. febrúar, 11. febrúar og 25. febrúar.