Mannlíf í Dölum
Í héraðinu eru starfrækt ýmis félög, bæði atvinnutengd og ekki síður til að auðga upp á félagslífið. Hér er gerð grein fyrir þeim helstu og er öllum íbúum velkomið að koma uppbyggjandi félagasamtökum hér á framfæri.
UDN, Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga, var stofnað 10. desember 1917. Formaður UDN er Finnbogi Harðarson, sími: 434 1660 / 897 9603, netfang saudafell@simnet.is /udn@udn.is
Breiðfirðingafélagið er eitt stærsta og virkasta átthagafélag landsins. Á meðal annars stórt og glæsilegt félagsheimili, Breiðfirðingabúð, að Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Hestamannafélagið Glaður er með heimasíðu þar sem má nálgast gagnlegar upplýsingar og kort af reiðleiðum í Dalabyggð.
Fjöldi félaga er um allar sveitir tengd búskap, búnaðarfélög, sauðfjárræktarfélög, Hrossaræktarsamband Dalamanna. Fjölmennast þeirra er Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu, sem stendur m.a. fyrir Haustfagnaði sauðfjárbænda fyrsta vetrardag ár hvert.
Kvenfélagið Fjólan starfar í Suðurdölum, Þorgerður Egilsdóttir í Laxárdal, Hvöt á Fellsströnd og Árdís á Skarðsströnd. Þessi kvenfélög ásamt kvenfélögum í Austur-Barðastrandarsýslu mynda Samband breiðfirskra kvenna.
Þá eru starfandi Sögufélag Dalamanna og Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna.
Tómstundir fyrir börn og unglinga
Björgunarsveitin Ósk, Glímufélag Dalamanna, Skátafélagið Stígandi, Badmintonfélag Dalamanna, ungmennafélögin innan UDN, Hestamannafélagið Glaður ofl. eru með skipulagt tómstundastarf fyrir börn og unglinga. Nánari upplýsingar má fá í tómstundabæklingi sveitarfélagsins eða á heimsíðum félaganna.
Kirkjustarf
Kirkjur og sóknir í Dalabyggð eru 11 samtals og falla undir 3 prestaköll og 2 prófastsdæmi. Narfeyrar- og Breiðabólsstaðarsóknir á Skógarströnd falla undir Stykkishólmsprestakall. Sóknarprestur er sr. Gunnar Eiríkur Hauksson. Sími 438 1632 / 438 1560 og netfangið er gunnareir@simnet.is. Undir Dalaprestakall falla Snóksdalur, Kvennabrekka, Stóra-Vatnshorn, Hjarðarholt, Hvammur, Staðarfell og Dagverðarnes. Sóknarprestur er sr. Óskar Ingi Ingason. Sími 434 1639 og netfang oskar.ingi.ingason@kirkjan.is. Skarðs- og Staðarhólssóknir falla undir Reykhólaprestakall. Sóknarprestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir. Símar: 434 7716 / 860 9987.
Samtíningur
Björn Anton Einarsson ljósmyndari