Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Setur þú niður kartöflur?
24. janúar 2012 10:30

Laust starf skólaliða

  

Skólaliða vantar í 68,75% starf við leikskóladeild Auðarskóla. Vinnutími er frá 11.30 - 17.00. Næsti yfirmaður er aðstoðarleikskólastjóri.  

 

Á starfsviði skólaliða er vinna við þrif, í eldhúsi og þvottahúsi, við afleysingar í forföllum og ýmis önnur störf.

 

Þrif

Skólaliðin sér um öll hefðbundin dagþrif á leikskólanum. Þrifin fara fram þegar einstök svæði eru ekki í notkun. Aðstoðarleikskólastjóri og skólaliði gera í sameiningu áætlun (skema) um þrifin í upphafi skólaárs. Heilþrif eru ekki inni á verksviði skólaliða.

 

Eldhús

Móttaka á mat frá eldunaraðila í hádegi og frágangur í móttökueldhúsi að loknum hádegismat. Einnig aðstoð við framreiðslu og frágang í síðdegiskaffi.

 

Þvottahús

Allir tilfallandi þvottar á tuskum og fl. í þvottahúsi leikskólans.

 

Aðstoð vegna forfalla

Tímabundin aðstoð við umönnun í forföllum starfsmanna í umönnun.

 

Önnur störf

Einstaka störf sem skólastjóri/aðstoðarleikskólastjóri felur skólaliðanum; t.d. sendiferðir og fl.

 

Áhugasamir hafi samband við Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur@audarskoli.is.

 

Auðarskóli