Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fundargerdir

Spurningin

Hvaða bollur finnst þér bestar?
20. janúar 2012 10:41

Syngjandi konur á Vesturlandi

   

Öllum syngjandi konum á Vesturlandi er velkomið að taka þátt í vinnuhelgi með Kristjönu Stefánsdóttur, djasssöngkonu helgina 3.-4. mars í Hjálmkletti í Borgarnesi.

 

Markmiðin eru að efla söng og þjálfun meðal kvenna á Vesturlandi, hvetja ungar konur til að ganga til liðs við kóra,  kalla til samstarfs konur víðsvegar að úr landshlutanum, gefa konum sem syngja í blönduðum kórum kost á að æfa og syngja með kvennakór, sýna afrakstur starfsins með tónleikahaldi og kynna þannig það öfluga kórastarf sem fram fer á Vesturlandi

 

Á dagskránni eru söngæfingar, hátíðarkvöldverður og tónleikar í Hjálmkletti í lokin. Að vinnuhelginni lokinni er ætlunin að halda tónleika á Akranesi, í Reykjavík, á Snæfellsnesi og mögulega aðra í Borgarfirði.  Þátttaka í tónleikunum er valfrjáls.

 

Ætlunin er að "Syngjandi konur á Vesturlandi" verði samstarfsvettvangur fyrir konur á Vesturlandi sem njóta þess að syngja.

 

Undirbúningur, skipulag og stjórn verkefnisins er í höndum Freyjukórs. Fjármögnun er í gegnum þátttökugjöld og styrki.  Menningarráð Vesturlands styrkir verkefnið.

 

Þátttökugjald er 10.000 kr, hádegismatur og síðdegishressing í tvo daga 2.000 kr og hátíðarkvöldverður (valfrjáls) 4.000 kr.

 

Þær konur sem vilja gista á staðnum hafa sjálfar samband við gististaði og panta gistingu.  Upplýsingar um gististaði í Borgarnesi og nágrenni má finna á heimasíðu Markaðsstofu Vesturlands, Vesturland.is. 

 

Skráning fer fram í gegnum vefslóðina www.vefurinn.is/freyjur  fyrir 13. febrúar 2012.  Fylla þarf út allar upplýsingar: Nafn, kennitala, nafn á kór (ef það á við), þátttaka í hátíðarkvöldverði og þátttaka í hádegisverðum og kaffi. Þátttakendur skrá sig með bindandi staðfestingargjaldi 4.000 kr. 

 

Auglýsing með nánari upplýsingum

Skráning