Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Hvað hét maður Auðar djúpugðu?
3. september 2010 19:42

Fjallskil 2010

Fjallskilanefndir hafa nú allar skilað inn fjallskilaseðlum og eru þeir allir birtir hér á vef Dalabyggðar.

 

Upplýsingar um fjallskil eru undir stjórnsýslu, einnig má stytta sér leið með að velja þau undir flýtileiðum til hægri á forsíðu.

Kemur þá yfirlit yfir fjallskiladeildir sveitarfélagsins. Þar er hægt að nálgast fjallskilaseðla á PDF formi, en einnig er hægt að fá örstuttan úrdrátt með því að velja nafn fjallskiladeildar. Þar er líka hægt að nálgast eldri fjallskilaseðla eins og þeir birtust á vefnum á sínum tíma.

 

Jafnframt er yfirlit yfir allar lögréttir í Dalabyggð. Þeir bændur sem eru tilbúnir að hafa opið hús fyrir alla sem vilja, geta að sjálfsögðu bætt heimaréttum við í atburðadagatalið.

 

Ábendingum, leiðréttingum, myndum og öðru því sem menn vilja koma á framfæri varðandi umfjöllum um fjallskil hér á vefnum skal komið til vefstjóra á netfangið safnamal@dalir.is