Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Hvað hét maður Auðar djúpugðu?
20. ágúst 2010 10:55

Landsbyggðin lifi

Samtökin Landsbyggðin lifi og nokkrir íbúar á svæðinu standa fyrir málþingi  laugardaginn 21. ágúst kl. 15 í Leifsbúð, Búðardal fyrir íbúa Dalabyggðar, Reykhólahrepps, Strandabyggðar og nágrennis. 

Ragnar Stefánsson varaformaður samtakanna Landsbyggðin lifi mun kynna samtökin og svara fyrirspurnum.

Heimamenn munu þá kynna stöðu atvinnumála á svæðinu og opna umræðu um tækifæri og hættur (í kjölfar kreppu). Matthías Lýðsson á Húsavík og Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum kynna sín störf og Halla Steinólfsdóttir segir frá stöðu mála í Dalabyggð.