Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Setur þú niður kartöflur?
17. ágúst 2010 11:15

Dalabríarí að Laugum í Sælingsdal

Tónleikar með Ljótu hálfvitunum og matur úr héraði verður sunnudaginn 22. ágúst á Hótel Eddu, Laugum í Sælingsdal, kl. 20:30. 

Sunnudagskvöldið 22. ágúst nk. ætla gestgjafarnir á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal að bjóða til skemmtunar í íþróttahúsinu með blöndu af tónlist og mat. Þar munu leiða saman hesta sína matgæðingurinn Friðrik V., kokkur hótelsins Snorri V. og hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir.

Ljótu hálfvitarnir er landsþekkt hljómsveit úr Þingeyjarsýslum og þetta mun vera í fyrsta sinn sem þeir halda tónleika í Dölunum.

Friðrik V. er landskunnur matreiðslumaður og hefur sérhæft sig í að töfra fram veisluföng úr því sem hvert hérað býður upp á. Hann hefur verið ráðgjafi Edduhótelanna í þeim efnum í sumar.

Verð á tónleika: 2000 kr.

Verð á matarskömmtum: mismunandi eftir réttum en verður stillt í hóf.

Hægt er að panta borð í síma 444-4930

 

Ítarefni

Hótel Edda - Dalabríarí 2010

Hótel Edda - matseðill 22. ágúst

Ljótu hálfvitarnir

Friðrik V.

MS Búðardal

Erpsstaðir

Ytri-Fagridalur