Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Hvað hét maður Auðar djúpugðu?
5. ágúst 2010 18:35

Auga ferðalangsins

Laugardaginn 7. ágúst kl 15:00-17:00 verða fyrirlestrar í Ólafsdal við Gilsfjörð í tengslum við sýninguna Dalir og Hólar 2010 – ferðateikningar. Þar munu Ólafur Gíslason listfræðingur og Margrét Elísabet Ólafsdóttir fagurfræðingur fjalla um ferðalagið. Umræður að loknum erindum.

Ólafur Gíslason kallar erindi sitt Auga ferðalangsins - Frá Eggert og Bjarna til Einars Garibaldi. Þar fjallar Ólafur m.a. um ferðalög til Íslands, Ítalíu og Kína og um túlkanir I. Calvino, G. Bruno og Tizian á frásögnum af ferðalögum.

Í erindi sínu fjallar Margrét Elísabet Ólafsdóttir um ferðlag listamannanna Marko Pelhjan og Matthew Biederman á gamlar veiðislóðir á norðurskautskvæði Kanada í fylgd með innfæddum í ágúst 2009.

Sýningunni Dalir og hólar 2010-ferðateikningar lýkur 8. ágúst.

Menningarráð Vesturlands og Vestfjarða, Ólafsdalsfélagið, Nýpurhyrna, Kulturkontakt Nord, Statens Kunstraad (Dk.) Rjómabúið Erpsstöðum og MS-Búðardal styrkja Dalir og Hólar 2010-ferðateikningar.