Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Spurningin

Hvað hét maður Auðar djúpugðu?
5. ágúst 2010 13:31

Ólafsdalshátíð á sunnudag

Dagskráin er vegleg, m.a mun leikhópurinn Lotta sýna hið vinsæla barnaleikrit um Hans klaufa, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður skemmta, fræðandi göngu- og söguferðir, ýmsar afurðir úr Dalabyggð og Reykhólasveit ásamt afurðum úr matjurtagarðinum í Ólafsdal. Síðan eru tvær áhugaverðar sýningar í Ólafsdalshúsinu.
 

Dagskrá Ólafsdalshátíðar

11:00 Undanfari hátíðar.

Gönguferð frá Ólafsdalshúsinu og inn í Hvarfsdal og Draugaskot undir leiðsögn Kristjáns Inga Arnarssonar í Stórholti. Fremur auðveld ganga.

13:00-14:00 Ólafsdalur, frumkvöðlasetur 21. aldar.

Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins.
Ávarp: Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Undirritun samnings um Ólafsdal.
Söngskemmtun: Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson.

14:00-17:00 Ólafsdalsmarkaður
MS í Búðardal býður ostasmakk með aðalbláberjum úr Reykhólasveit - kræklingur frá Nesskel - grænmeti úr matjurtagarðinum í Ólafsdal - ís frá Erpsstöðum - handverksmarkaður - afurðir úr hráefni frá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum - kaffi, kleinur og safi í boði Ólafsdalsfélagsins  - Dalaleir: leirlistakonan Sigríður Erla - hvannalamb frá Ytri-Fagradal - Ólafsdalshappdrætti til styrktar félaginu (miðaverð 500 kr). - hestar teymdir undir börnum - önnur húsdýr - slegið með orfi og ljá.
14:15 "Í spor jarðyrkjumannsins Torfa"
Stutt söguganga með Bjarna Guðmundssyni, prófessor á Hvanneyri.
15:00 Hans Klaufi
Leikhópurinn Lotta sýnir barnaleikritið Hans klaufa sem er í frægðarför um landið.  Sýningin tekur tæpa klukkustund.
13:00-17:00 Sýningar í Ólafsdal

Afmælissýningin „Ólafsdalsskólinn 1880-1907“ á 1. hæð Ólafsdalshússins. Listsýningin „Dalir og Hólar - ferðateikningar“ á 2. hæð Ólafsdalshússins.

13:00-23:30 Kaffihlaðborð á Skriðulandi

 

Netsamband er enn stopult í Ólafsdal og því eru gestir beðnir um að hafa með sér lausafé hafi þeir hug á að versla á markaði eða taka þátt í Ólafsdalshappdrætti.

 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Ólafsdalsfélagsins www.olafsdalur.is


Fyrir þá sem hyggjast gista á svæðinu í fellishýsi, húsbíl eða tjaldi er möguleiki að gista nærri húsinu þar sem nú hefur verið slegin stærri flöt en áður. Þeir sem það hyggjast gera vinsamlegast hafi samband við Rögnvald Guðmundsson í síma 693 2915.