Laugar í Sælingsdal
Létt gönguleið fyrir alla fjölskylduna um heimahaga Guðrúnar Ósvífursdóttur að Laugum.
Við veginn á leið heima að Laugum Þar er kort með gönguleiðum um Sælingsdal og nágrenni. Um nokkrar gönguleiðir er þar að velja. Hver og einn getur síðan valið eftir göngugetu, tíma og áhuga.
Ganga 1
Göngutími um 35 mínútur.
Gengið er um Módal og upp á Hádegishól, þar sem gott útsýni er yfir botn Hvammsfjarðar. Þaðan sést m.a Baula í Borgarfirði en hún var allstaðar eyktarmark þar sem til hennar sást úr Dalasýslu. Af Hádegishól er gengið niður að Lambhólslæk og farið yfir hann á rústum gamallar myllu, sem lækurinn knúði. Þaðan er gengið bak við Lambhólinn meðfram Sælingsdalsá og yfir holtið norðan við Lómatjörn. Klettahóllinn við gilið og götuna suðaustur af bænum heitir Dagmálahóll. Síðasta spottann er gengið gamla veginn heim að Laugum.
Ganga 2
Göngutími er um 40 mínútur.
Þegar komið er yfir Hveragil er gott útsýni yfir Laugar. Gengið er þvert á skriðuna á milli Hvergils og bæjargils. Þar sést um tíu metrum fyrir neðan götuna hvar steypt var í heita laug sem kemur upp úr skriðunni. Þar fyrir neðan, rétt fyrir ofan gamla túngirðingu, er talið að verið hafi sú forna baðlaug sem getið er í Laxdælu. Frá bæjargilinu er hæð haldið að Kvíagili, sem er djúpt og fallegt og stendur við ána gegnt Tungustapa. Söguna um Tungustapa er að finna í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, en samkvæmt henni er stapinn dómkirkja álfa. Frá Vermundshól er hægt að lengja gönguna og halda áfram götuna niður að Stekknum, sem kúrir undir hrauninu niðri við ána. Stekkurinn sést greinilega og líka lambakróin. Litlu nær ánni má sjá mógrafir Laugabænda. Gengið er til baka um Göturnar, yfir holtið framhjá Vermundshól og að Kvíunum, sem eru vel sýnilegar rétt fyrir norðan gamla laugabæinn. Þaðan er gengið niður á þjóðveginn og heim.