Þurranes í Saurbæ
Þurranes í Saurbæ
371 Búðardalur
Sími: 434 1556 / 847 8660
Netfang: thurranes@centrum.is
Heimasíða: http://thurranes.is/
Opið allt árið
| |
 |
|
|
|
 |
|
Ljósm. Þorkell Þorkelsson |
|
|
Þurranes er í Staðarhólsdal miðsvæðis í Saurbæ, um kílómeter frá Staðarhólskirkju og félagsheimilinu Tjarnarlundi.
Í Þurranesi er rekin ferðaþjónusta í rúmlega 80 m2 húsi. Í því eru fimm tveggja manna herbergi og baðherbergi.
Við húsið er nýreist þjónustuhús með eldhúsi, borðsal, setustofu og baðherbergi með aðgengi fyrir fatlaða. Í risi er síðan svefnloft með sjö rúmum, auk þess sem rými er fyrir dýnur.
Auk þess eru þrjú sumarhús til leigu, hvert fyrir um sex manns.
Hægt er að fá veitingar, en þær þarf að panta með fyrirvara.